Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Qupperneq 54
364
Höfundur Robinsons Crusoes.
IÐUNN
fáu b-ó.ka, sem ekki úreldast. Hún er jafn-ný i dag eins
og hún var fyrir tvö hundruð árum síðan. En hinn 26.
april i ár voru tvær aldir liibnar frá dauða höfundar
hennar. Hefir hans aldrei að neinu ráði verið minst á
íslenzku, en er slíks þó fyllilega verðugur.
Lesi menn æfisögu Defoes, finst manni mest til um
þetta þrent: frábæra hugvitssemi hans, fjölhæfni hans
og starfsþrek. Hann lagði gerva hönd á margar greinir
bólkmentanna; þar að auki var hann slunginn kaup-
maður og sniðugur stjórnmálamaður. Æfisaga hans
verður engum leiðinda-lestur. Hann var æfintýramaður
stórurn meir en alment gerist, átti oft í striðu að standa
og gekk ekki ávalt sigri hrósandi af hólmi. Þekti, hann
af eigin reynd dutiungasemi gæfiunnar svokölluðu. Fá-
tækt og ríkidæmi voru hiutskifti hans, hamingja og
mótlæti. Hann hafði þá háðung þolað að standa í gapa-
stokknum og eiga dvöi innan fangelsisveggja. Konungs-
hylii og tiltrúar naut hann um skeið, en á öðru tímabili
æfi sinnar var hann hlaðinn smánaryrðum, liatri og
fyrirlitningu. Defoe gat því með sanni orkt um sjálfan
sig:
„No man has tasted differing fortunes more,
and thirteen times I have been rich and poor.“
Annars er æfi Defoes æði miki'ð á huldu, ekki sízt
fyrri hluti hennar. En hann kom svo víða við sögu, að
það eitt, sem vitað verður um hann með vissu, fyllif
;stærðar-bók.
Daniel Defoe var, að ]iví er næst verður komist,
fæddur í Lundúnum í árslok 1659 eða i áfsbyrjun 1660.
Hann var sonur slátrara eins, er var sértrúarmaður
{dissenter). Tíðum áttu slíkir menn eigi sjö dagana
sæla, voru bæði fyrirlitnir og ofsóttir. TrúarLegt um-
burðarlyndi var enn í bernsku á Englandi. En svo er