Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 56

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 56
366 Höfundur Robinsons Crusoes. IÐUNN bera á fyrri árum, hafi átt sinn hlut í að sljóvga rétt- lætis- og siðferðis-kend hans. En ekki skal ég fneista að gera dýrling úr honum; hann mundi hvort sean er kunna illa við sig í þeim hóp. Hið virðingarverða og fyririit- lega blandast í skapgerð hans, svo örðugt er oft að greina þar á miLli. Enda segir William Minto, sem ritað hefir víðkunna æfisögu Defoes, að hann hafi verið „furðulegt sambland af þorpara og föðurlandsvini" (a wonderful mixture of knave and patriot). Ritstörf Defoes voru óvenjulega margþætt, en blaða- menska hans var einhver merkasti þáttur þeirra. 1 febrúar 1704 stofnaði hann blaðiö „Review“. Kom það fyrst út vikulega, en síðar á þriggja vikna fresti, nokk- urn veginn reglulega, í nærri níu ár. Að jafnaði var það fjórar blaðsíður í litlu fjögra blaða broti. Fjiöl- breytt var það að efni, ræddi flest þau m'ál, sem þá voru efst á baugi. En gamanmál skiftast á við hið al- varlegra, enda var ritinu ætlað bæði að fræða og skemta. Níu árgangar blaðs þcssa eru yfir fiinm þús- und blaðsíður, en Defoe ritaði það einsamall, eða því sem næst, alla útkomutíð þess. Er það auðsjáanlega ekkert smáræðis starf, einkanlega þegar þess er gætt, að hann skrifaði jafnframt fyrir önnur blöð og gaf út mikinn fjölda bóka og bæklinga á þessum árum. Þó er þaö enn markverðara, að „Review" Defoes var, að dómi sérfróðra manna, san.ngjarnara í rithætti, látlaus- ara að máli og fjölbreyttara og heilbrigðara að inni- haldi en nokkurt stjómmálablað, sem til þessa hafði verið gefið út á Englandi. Blað þetta er einnig að öðru: leyti mjög merkilegt í sögu blaðamensku og blaðaút- gáfu. Talið er, að Defoe hafi fyrstur manna byrjað á því að skrifa ritstjóragreinar og birta viðtöl (interviews). Sjá allir, að þessd nýbæytni var hin merkdlegasta, og

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.