Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Qupperneq 60
370
Höfundur Robinsons Crusoes.
IÐUNN
leggur til, að stofnaður sé kvenna-hásköli (academy
for women). Víðar koma umbótahugsjónir Defoes fram
í ritum hans, t. d. í ýmsum ritgerðum frá síðustu ár-
um hans; þar hvetur hann meðai annars til þess, að há-
skóli sé settur á stofn í Lundúnum og að komið sé
upp munaðarleysingjahæli par í borg. Menta- og mann-
úðar-málin hafa því auðsjáanlega verið Defoe einkar
hjartfólgin. En í þessari umbótaviðleitni sinni var hann
langt á undan samtíð sinni, og orð hans féllu því í
grýtta jörð.
Enn má benda á það sem frekari vott um fjölhæfni
Defoes og afkastasemi, að auk margra æfisagna reit
hann ýms önnur rit sögulegs efnis, og ferðasögur. En
eigi er þess getið, að hann hafi fengist við leikritagerð;
er það þá eina höfuð-grein bókmentanna, sem hann hef-
ir ekki spreytt sig á.
Þau rit Defoes, sem þegar hafa rædd verið, þó
merkileg megi teljast, hefðu eigi nægt tiJ að koma
honum í fremstu skálda röð og tryggja honum sess í
enskum bókmentum um aldur og æfi. En þegar Defoe
var sextugur, á þeirn aldri, er margir fara að hyggja
til hvíldar eftir unnið æfistarf, tók hann að rita skáld-
sögur og skráði þá Robiiison Crusoe, það ritið, sem bor-
ið hefir nafn hans út um víða veröld. Það er Defoe frá
árunum 1719—1724, frá því að hann var sextugur og
þangað tii hann var hálfsjötugur, sem kunnastur er les-
endum nútímans. Á Jiessum árurn saindi Defoe ellefu
stærðar-bækur, að mörgu öðru frátöldu. En mestu varö-
ar, að í þessum rita-flokki er að finna flest þau, sem'
mest listgildi eiga, af öllu hinu marga og mikla, sem
eftir höfund þeirra liggur. Auk Robinsons Crusoes ma
]>essi nefna: A JourmL of the Plague, sem orðið er
klassiskt rit í enskum bókmentum; Captain Singleton,