Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Blaðsíða 88
398
Bækur.
iðunn
Annars minnist ég alclrei að liafa séð á æfi minni bók
með öðrum eins lifandi ókynstrum af prentvillum. Það er
blátt áfram nýjung og tilbreyting og nautn að lesa bókina
vegna þeirra, — eftir að lesandinn hefir uppgötvað, að
petta er vafalaust heimsmet í þessari grein prentlistarinnar.
Sigurður Einarsson.
U/)ton Sinclair: J i m m i e H i g g i n s.
Ragnar E. Kvaran þýddi. Rvík. Bók-
mentafélag jafnaðarmanna, 1931.
Upton Sinclair cr tvímælalaust einn af merkustu rithöf-
undum heimsbókmentanna á vorum döguin — hvassastur,
óhlífnastur, hugdjarfastur þeirra allra. Með ódræpum dugn-
aði og eldmóði hefir hann um nær þrjá tugi ára barist
eins og ljón fyrir félagslegum og menningariegum rétti
þeirra, sem búa skuggamegin í þjóðfélaginu. Bækur hans
hafa aldrei verið hlutlausar, aldrei gerandi gælur við á-
standið eins og það er, aldrei skrifaðar af listrænum hvöt-
um einum saman. Sinclair hefir ekki skrifað til þess að
skrifa — né heldur til þess að lifa. Með hverri bók liefir
hann átt ákveðið, brýnt erindi. Erindin hafa verið mörg og
margvísleg, því það er fátt, sem gerist í þjóðfélaginu, án
þess að Sinclair láti sig það nokkru skifta. En sé litið á
ritstörf hans í heild, sjáum við brátt, að markið er eitt og
æ hið saina: að fletta ofan af misréttinu, ranglætinu, spill-
ingunni í opinberu lífi, hvar sem það kemur i ljós, að vekja
sofandi sálir til íhugunar og andstygðar á misfellunum og
þar með til baráttu fyrir tilkomu nýrrar veraldar, þar sem
auðgræðgin fær ekki að drottna yfir öllum betri eigindum
mannsins.
Lengi vel, framan af rithöfundarferli Sinclairs, vildu fáir
eða engir á hann hlusta. Því ákafar sem hann barðist, því
ramgerðari múr þagnar og kæruleysis var reistur kringum
hann. Bókaútgefendur höfnuðu handritum hans, og þegar
hann svo hafði klifið þrítugan hamarinn og gefið bækurnar
út sjálfur, neituðu bóksalarnir að selja þær. Blöð og tíma-
rit gerðu sitt ítrasta til að þegja hann i hel. En Sinclair
lætur ekki jiegja sig í hel. Nú á síðustu árum er hann orð-
inn víðlesinn rithöfundur, iafnvpf mpö sinni eigin þjóð, en