Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1929, Page 95

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1929, Page 95
ÍÐUNN Ur hugarheimum. 89 með sálkönnun sína og segir: Nei, ástin er frumhvötin > tilverunni, og ef hún skipar æðra rúm í ritum skáld- anna en í daglegu lífi, þá er það ekki lífið, sem hefir á réttu að standa, heldur skáldin. Svo erum vér engu nær. En svo vér snúum oss aftur að fornsögunum, þá liggur beint við að spyrja á þessa leið: Ganga sögurnar viljandi fram hjá ástamálunum, eða var blóðið kaldara í forfeðrum vorum en það er í oss? í sögunum Iesum vér um virðulega unga menn, sem keyptu sér konu, með hér um bil sama hætti eins og vér nú á dögum kaupum hest eða kvígu. En hvernig var þessum ungu herrum innan brjósts? Með hverskon- ar tilfinningum gengu þeir til kaupanna? Um það þegir sagan. Á íslandi er fjöldi skálda þann dag í dag, og af því getum vér ályktað, að forfeður þeirra hafi þó aukið kyn sitt. En hvað vitum vér svo meira? Dálítið getum vér nú lesið á milli línanna. Því þótt tíðarandinn leyfði ekki að fjölyrt væri um ástalífið sjálft, þá var hverjum heimilt að dvelja eins lengi og hann lysti við hatrið og hefndirnar, sem af ástinni leiddi. Með þess- um óbeina hætti fáum vér ekki svo litla vitneskju af sögunum. Knúðir af helgum og heitum tilfinningum hjuggu þessir gömlu íslendingar hvor annan og lögðu hvor annan í gegn af alveg einstöku kappi og dæmafáum dugnaði, sem vissulega hefði mátt verja betur. Ástin sjálf — sú hvötin, sem við heldur lífinu og býður mönnunum að aukast og margfaldast — varð því engu síður mikil- virk í þá áttina að hindra að mannfólkinu fjölgaði um of á sögueynni. Eins og við er að búast, er það einkum í skáldasög- unum, að vér lesum og heyrum um vald ástarinnar yfir hugum mannanna. Skáldin hafa æfinlega verið óeirða- menn í þeim efnum, og þau voru víst ekki hótinu skárri í þá daga en þau eru nú. Skáldið var ástríðuríkt og ást- ajarnt, óákveðið, huglaust og margfalt í roðinu. Það brast þor til að bindast þeirri, sem það elskaði — en giftist hún svo öðrum, þá var fjandinn laus. Kormákur yrkir eldheit ástaljóð til unnustu sinnar, en þegar tæki- færin bjóðast til annars og meira, lætur hann þilið hlífa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.