Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1938, Blaðsíða 28

Kirkjuritið - 01.07.1938, Blaðsíða 28
286 Hinn almenni kirkjufundur. Júlí. Það styrkir vonir, að geta treyst þessu, að hæfileikinn er með- fæddur. En það sýnir enn betur ábyrgð þeirra, sem barnið elzt upp hjá. Á engum hvílir æðra hlutverk en móðurinni í því, að leggja fyrsta grunninn. En ábyrgðin hvílir og á hverjum heimilismanni, og þá ekki síður á skóla og kirkju, er barnið eldist. í gegn um Passíusálma Hallgríms þykist ég sjá Pétur hringjara föður lians, er deyr með þá bók í höndum, er seinni rannsóknir sýna, að hefir endurvaknað í huga skáldsins, er hann kvað sálmana. Og í gegnum öll trúarljóð Matthíasar sé ég móður hans með sveiu- inn við kné sér, að benda honum og fræða hann, eins og hann lýsir sjálfur í kvæði sínu um hana og í kvæðinu um jólin heima. Þennan grundvöll höfðu þessi foreldri lagt. Til eru foreldri, sem hafa reynt að leggja sama grundvöllinn, en telja, að sér hafi brugðist árangur þegar barnið óx upp. Þau foreldri vil ég mínna á, að báðum hafði þessum trúarskáldum skeikað frá þeim grund- velli á gelgjuskeiði lífsins. En þó fengu þeir aldrei algerlega af honum horfið, og því urðu þeir þjóð sinni og kirkju svo ómetan- leg gjöf. Svo miklu varðar, að trúargrundvöllurinn sé lagður í harns- hjartað. Svo miklu telur ein kirkjudeildin það skifta, að sá grund- völlur sé snemma lagður, að hún fullyrðir, að sér glatist ekkert barn, sem fær þenna fyrsta grundvöll lagðan i brjóst sér innan 7 ára aldurs. Hér fær presturinn veitt stuðning. Meðál annars með því að kynna sér þetta betur í húsvitjunum, svo sem með því að taka börnin sjálf tali, en út af því geta oft sprottið samtöl við annað foreklrið eða bæði, er fá orðið frjóvgandi einnig fyrir prestinn. Einnig getum vér prestar komið oftar inn á þessi mál á prédik- unarstólnum. Það muu reynslan, að eftir þeim ræðum sé tekið. Og ekki þurfum vér að hika við að tala jafn hispurslaust um skyldur hinna eldri við börnin sem um skyldur hinna ungu við þá. Trúarhæfileikinn er meðfæddur. Alt veltur á að hann sé ekki kæfður, annaðhvort þegar í bernsku eða síðar á gelgjuskeiði æskunnar. Sízt ber því að neita, að upp af gönuskeiðum á árekstrum æskunnar getur oft sprottið þroskamikil trú, svo sem mörg eru dæmin. En yfirleitt er heilbrigt æskulíf skilyrði heilbrigðs þroska trú- arhæfileikans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.