Kirkjuritið - 01.07.1938, Side 33
Kirkjuritið.
Hinn almenni kirkjufundur.
291
Aðeins vil ég láta í ljósi ánægju mína yfir því, að einn af
væntanlegum leiðtogum kennarastéttarinnar, sem er doktor í
uppeldisfræði, heldur þvi eindregið fram, sem kirkjunnar menn
hafa lengi fram haldið, að kensla í kristnum fræðum sé alstaðar
þar sem því verður við komið falin þar til kjörnum sérkennurum,
enda fái þeir sérstakan undirbúning til starfsins.
Tillögur okkar eru meir miðaðar við það, sem ætla má fram-
kvæmanlegt, en að ris væri hátt. Þær miða meir að þvi, að örva
og endurvekja það starf, sem heimilum ög kirkju hefir vel gefist,
en að brjóta upp á nýjungum. Við höfum talið meiru skifta heil-
brigðan vöxt hinna fornu linda, en nýtt og hátt gos, sem þá dytti
jafnharðan niður i sömu holuna, svo sem oft er um rismestu fund-
arsamþyktirnar.
Fieira er það þó, sem ég teldi ástæðu til að ræða, en það, sem í
þessum tillögum felst, þar á meðal: Kirkjan og íþróttamálin.
Kirkjan má þess minnast, að Páll nefnir mannslíkamann musteri.
Og honum var ekki sama um, hvernig búið væri að þessu musteri
Guðs.
Það var ekki tilviljun, að þegar fenginn var liingað þjálfari frá
Bretlandi, þá var maðurinn ungur guðfræðingur, sem las gríska
Nýja testamentið sitt milli æfinga. Brezk kirkjufélög vilja ala upp
hraustar sálir í hraustum líkömum.
Svíar hafa að minsta kosti einn sérstakan íþróttaprest. En úr
Nor'egi minnist ég íþróttamanns, sem ég sá i kirkju sinni og ganga
þar til altaris á sportskyrtunni, áður en hann hljóp út í leikinn.
K. F. U. M. hefir verið styrkur þátttakandi i íþróttum með öllum
þjóðum og svo er og hér hjá oss.
Sjónarmiðið „hraust sál í hraustum líkama“ var ríkjandi á
pi'estaskólunum á Hólum og í Skálholti, og enn var kirkjan fulltrúi
íþróttanna á þjóðhátíð vorri 1874, enda urðu guðfræðingarnir, sem
þar glímdu fyrir konunginn, kristin karlmenni sem prestar.
Ég held, að ungir guðfræðingar ættu að iðka íþróttir með lestri
gríska testamentisins, eins og Bretar, því að vér þurfum þjálfuð
kristin karlmenni fyrir leiðtoga æskunnar. Enda fá menn svo
bezt stutt hinar frjóu lífsnautnir til aleflingar andans og þarfra
athafna, gegn nautn dauðans, drykkjuskapnum
Sá, sem tilbiður Guð, á ekki að vanrækja musteri hans. Það á
ekki síður við um það musterið, sem Páll á við, er hann segir:
„Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda í yður,
sem þér hafið frá Guði.. Vegsamið því Guð í líkama yðar!“ l.Kor. 6
íþróttamálin eru því þess verð. að kirkjau gefi þeim gaum.
Betur mun þó henta, að skjóta þessu máli til sérstakrar undir-
búningsnefndar, en að bera nú þegar fram um það sérstaka tillögu.