Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1938, Page 47

Kirkjuritið - 01.07.1938, Page 47
Kirkjuritið. Hinn almenni kirkjufundifr. 303 í kristnum fræðum, þar sem eru fastir barnaskólar. En jafn- hliða á þvi, sem prestarnir, að meira eða minna leyti, önnuðust kristindómsfræðsluna í barnaskólunum, skyldu þeir boða öll skólaskyld börn á kirkjur sinar tilskylda messudaga síðari hluta vetrar og eitthvað fram eftir vorinu til spurninga og fræðslu i trúarbrögðum. Yfir sumarmánuðina þyrftu svo prestar alment að halda viö og við alveg sérstakar barnaguðsþjónustur, og leggja áherzlu á, að yngri hörn gætu þá einnig verið með. Væri nauðsynlegt, að börnin gætu tekið einhvern virkan þátt í þessum guðsþjónust- um, svo sem með sálmasöng og jafnvel fleiru, eftir því sem prestunum þætti við eiga í hvert skifti. Alt myndi þetta glæða trúar- og kirkjulifið, ekki aðeins lijá börnunum, en það væri þó mest um vert, heldur einnig fullorðna fólkinu, sem þá myndi eftir mætti fylgjast með í kirkjurnar. Það er ekki tilgangur minn, að fara hér mikið fleiri orðum um það, hvernig kristindómsfræðslunni ætti að vera hagað. Að sjálfsögðu yrði það einkamál þeirra, sem þá fi’æoslu hafa á hendi. Aðeins vil ég geta þess, að yfirleitt er ég þeirrar skoðunar, að ekki beri að kenna börnum svo eða svo mikið af utanaðiærðum trúarsetningum, umfram það, sem nauðsynlegt er sem umbúðir utan um kjarna kristindómsins, samkvæmt kenningum Krists og eftir hans fyrirmynd, sem er aðalatriðið. Það þarf að hugleiða með börnunum almætti Guðs og góð- leik hans við oss brotlega og ófullkomna menn. Hugleiða með, þeim mikilleik og ótæmandi kærleika frelsarans — sýna þeim fram á, hvernig hann lifði og starfaði, sifræðandi um æðstu sannindi lífsins, síhuggandi og græðandi meinsemdir mann- anna, og reyna með þvi að fá börnin til að líkjast honum sem mest í allri breytni sinni og framkomu, þvi að það verður mfinlega kjarni og aðall kristindómsins. En hvað geta svo pestarnir gert sérstaklega fyrir unglingana eftir fermingaraldur? í tillögum sinum „um ný afskifti islenzkra sveitapresta af menningarmálum sveitanna og um skólamál", bendir Halldór Jónsson, prestur að Reynivöllum, mjög ákveðið á þá leið, að prestarnir taki upp unglingafræðsiu í sveitunum. Gerir hann ráð fyrir, að þessari fræðslu sé ætlað sérstakt rútn, annaðhvorl í barnaskólahúsum sveitanna, jafnóðum og þau yrðu reist, eða þá í samkomuhúsum æskulýðsfélaganna. Ætlasl svo séra Halldór Jónsson til þess, að prestarnir nteð þessum hætti gefi „námfúsum unglingum meðal sins safnaðar kost á tilsögn í ýmsum almennum, hagnýtum fræðigreinum tiltekna daga í viku

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.