Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1938, Page 59

Kirkjuritið - 01.07.1938, Page 59
Kirkjuritið. Hinn almenni kirkjufundur. 315 var frá foringja einum, sem starfaði einhvers staðar í borginni, og efni þess var þetta: ,,í nótt dó 35 ára kona frá 5 börnum. Maður hennar var einhvers staðar úti i löndum. Heimilið virðist bjargarlaust og enginn sinnir því. Hvað á að gera?“ — „Lík sendi- bréf þessu fáum við daglega“, sagði forstöðumaðurinn, „og stundum mjög mörg.“ Og ég sannfærðist þó enn betur um liið ágæta starf Hjálpræðisbersins í London, er ég næstu daga fór með hjálp- ræðishersforingja um austurbluta Lundúnaborgar og sá með eigin augum, hvert verk bann vinnur þar i mestu skuggahverfum borg- arinnar. — Ógrynni af fé gefst öllum þessum stofnunum — því að alt þeirra starf, eins og annað kirkjulegt starf í Englandi, hyggist á frjálsum framlögum manna, en að því mun ég síðar víkja nokkuru nánar. Allmerkilegt kristilegt og kirkjulegt starf er unnið af báskóla- stúdentum í mörgum borgum Englands. í Lundúnum eru tvö slík félög meðal stúdenta, Tlie Cliristian Student Movement og Inner Varsity Fellowship. Telur hið fyrra 1200 stúdenta og hið síðara 000, en sérstaklega þó guðfræðistúdenta, sem jafnframt námi sínu starfa nijög mikið, sérstaklega á sunnudögum. Kyntist ég náms- háttum þeirra og starfi allmikið, bæði í Lundúnum og við guðfræð- ingaskólana Riddley Hall College i Cambridge og Wycliff Hall í Oxford. — Ef ég ætti að bera guðfræðideild báskóla vors saman við það, er ég sá þar, þá vil ég segja það háskóla vorum til hróss, að ég hygg, að guðfræðileg mentun stúdenta hér sé engu minni en þar, og að þeir séu að því leyti engu lakar undir starf sitt búnir. En það skortir mikið á, að þeir liafi kynst eins mikið og tekið eins mikipn þátt í starfinu meðai fólksins. Mér var sagt, að í Cambridge og Oxford starfaði hver guðfræðistúdent eitthvað ákveðið, venjulega mest að prédikunarstarfi og kristin- fræðslustarfi á hverjum einasta helgidegi. — Ný hreyfing er nú liafin í Lundúnum meðal ungra manna á aldrinum 17—30 ára. Er hún nefnd „Hreyfing ungra kirkjumanna", og hafa þeir sett sér það markmið, að vinna að því að skapa enn meira líf og starf innan kirkjunnar. Þeir eru um 2000 að tölu og hafa þegar látið allmikið til sin taka. Annars er ótrúlega mikið starf alstað- ar þar sem ég kyntist int af hendi innan safnaðanna sjálfra og !>lveg undravert, hve almenn þáttaka leikmanna er í starfinu og hve miklu þeir fórna bæði af fé og tíma sinum fyrir kirkju sína. I'il skýringar og sönnunar þessu vil ég laka eitt dæmi, sem ég hefi beint frá ritara einnar kirkjunnar í London. I sókiiinni er 6000 manns. Árlegar tekjur eru £1100 eða nál. 25000.00 íslenzkar krónur, og er þetta alt frjálst framlag fólksins í söfnuðinum. Ný- lega þurfti sérstaklega á fé að halda til safnaðarstarfseminnar,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.