Kirkjuritið - 01.10.1938, Page 8

Kirkjuritið - 01.10.1938, Page 8
338 Ásmundur Guðmundsson: Október. II. Vér vitum þá, livert stefna skal. En hvernig eigum vér svo að öðru leyli að liaga för- inni næsta áfangann? Við þeirri spurningu eigum vér óefað fjölda af svör- um, og gæti orðið efni í marga fyrirlestra. En ég ætla aðeins i stuttu máli að drepa á fátt eitt, er mér þykir mjög miklu skifta. Um starf kristninnar fyrir börnin varðar allra mest. I því eru mæðurnar fyrst og fremst æðstu prestar, og' skal um fram alt lieita á þær lil forystu. Ýmsir segja, að alvöruleysi og léttúð ungu kynslóðarinnar sé orðin á svo háu stigi, að ekki megi mikils vænta i þessum efn- um af mæðrum framtíðarinnar. En einhverju svipuðu hefir sennilega löngum verið haldið fram á liðnum öld- um, og er naumast meir takandi mark á því nú en þá. Þegar æðsta og helgasla alvara lífsins kallar, þegar harnsaugun horfa við móður sinni, þá ómar Guðs rödd inst í sál lienni og löngunin vaknar að lifa fyrir barnið — fórna sér fyrir það. Og sá kristindómur verður líf hæði fyrir móðurina og barnið. Á þessu sviði, starfssviði móðurinnar fvrir hörnin sín, hafa verið unnin mestu afreksverk á íslandi, og mun svo enn. Þar sjáum vér mæður kristninnar í landinu, er sízt af öllu má van- treysta. Kirkjan á að hlutasl til um það, að þessir beztu starfsmenn liennar fái hlutdeild í þeirri þekkingu, sem uppeldisvísindi vorra tíma eiga hezta að hjóða, á trúar- lífi barna og sálarlífi yfirleitt, og hvernig það megi ná sem eðlilegustum og' heilbrigðustum þroska. Þvi að ein- liver allra merkasta niðurstaða þessara vísinda er sú, að fyrstu ár barnsins ráði mestu um það, hvernig skap- gerð þess mótist, og þá verði lögð að nokkuru levti und- irstaðan undir æfi þess síðar. í ljósi þeirrar þekkingar allrar á hverri móður — og liverjum föður — að veitast léttar að ala upp hörn sín í anda orða Jesú: „Levfið börnunum að koma til mín, því að slíkra er guðsríkið".

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.