Kirkjuritið - 01.10.1938, Page 21

Kirkjuritið - 01.10.1938, Page 21
Kirkjuritið. Kirkjan og dósentsmálið. 351 prestar og ýmist eru gaxnlir nemendur eða kennarar Prestaskólans og' Háskólans. Þetta snertir hina fjóra Islendinga í dónefndinni. Og naumast verður það talin viðeigandi kurteisi við Kaupmannahafnarháskóla, þar sem próf. Mosbeck er mikilsvirtur starfsmaður, og góð- fúslega lánaður hingað til dómarastarfanna, hvernig hann er lítilsvirtur í skrifum ráðherrans. Það er ekki ætlun mín að fara hér út i neinn mann- jöfnuð á liæfni þeirra manna, sem hér liafa átt hlut að máli. Um slíkt má sjálfsagt deila. En hér er komið sem komið er, að fyrir harðfylgi eins manns, sem tekið hefir sér valdið, er Sigurður Einarsson orðinn dócent við guð- fræðideild Háskólans, þvert ofan í tillögur löglega skip- aðrar dómnefndar, og' áreiðanlega í trássi við vilja og' álit meiri liluta hinnar íslenzku kirkju, hæði presta og leikmanna. Hér hefir því gerst atburður, sem er liarla athj'glisverður fyrir kirkju íslands, og sem er ljóst dæmi þess, hve máttlaus hún er til þess að sporna við því, að ýmislegt geti gerst, sem yrði henni alt annað en heppi- legt til framdráttar eða framtíðarþrifa. Ilér er það sýnt, hve kirkjan er i raun og veru magnþrota gegn ríkis- valdinu, ef því kann að verða beitt af frekju og' ósvífni, eða fullum óvildarliug i garð kristindóms og kirkju- legrar starfsemi. Ég skal reyna að finna þessum orðum frekari stað. Eins og kunnugt er, segir í 57. gr. stjórnarskrárinnar, að hin evangeliska lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Islandi, og skal ríkisvaldið að þvi leyti styðja liana og vernda. Nú er reynslan húin að sýna það í mörg ár, að kirkjumálin og kenslumálin heyra ekki altaf undir sama ráðherra, og getur því sá maður valist í sess kenslumála- ráðherra, sem væri andvígur allri kristindómsboðun og vildi kirkjuna feiga. En undir kenslumálaráðherra og yfirstjórn hans heyra skólar landsins, alt frá barnaskól- um og upp í Háskólann. Það eru þvi engin smáræðis tök, sem þessi ráðherra liefir á skólamálum landsins.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.