Kirkjuritið - 01.10.1938, Blaðsíða 21
Kirkjuritið.
Kirkjan og dósentsmálið.
351
prestar og ýmist eru gaxnlir nemendur eða kennarar
Prestaskólans og' Háskólans. Þetta snertir hina fjóra
Islendinga í dónefndinni. Og naumast verður það talin
viðeigandi kurteisi við Kaupmannahafnarháskóla, þar
sem próf. Mosbeck er mikilsvirtur starfsmaður, og góð-
fúslega lánaður hingað til dómarastarfanna, hvernig
hann er lítilsvirtur í skrifum ráðherrans.
Það er ekki ætlun mín að fara hér út i neinn mann-
jöfnuð á liæfni þeirra manna, sem hér liafa átt hlut að
máli. Um slíkt má sjálfsagt deila. En hér er komið sem
komið er, að fyrir harðfylgi eins manns, sem tekið hefir
sér valdið, er Sigurður Einarsson orðinn dócent við guð-
fræðideild Háskólans, þvert ofan í tillögur löglega skip-
aðrar dómnefndar, og' áreiðanlega í trássi við vilja og'
álit meiri liluta hinnar íslenzku kirkju, hæði presta og
leikmanna. Hér hefir því gerst atburður, sem er liarla
athj'glisverður fyrir kirkju íslands, og sem er ljóst dæmi
þess, hve máttlaus hún er til þess að sporna við því, að
ýmislegt geti gerst, sem yrði henni alt annað en heppi-
legt til framdráttar eða framtíðarþrifa. Ilér er það sýnt,
hve kirkjan er i raun og veru magnþrota gegn ríkis-
valdinu, ef því kann að verða beitt af frekju og' ósvífni,
eða fullum óvildarliug i garð kristindóms og kirkju-
legrar starfsemi.
Ég skal reyna að finna þessum orðum frekari stað.
Eins og kunnugt er, segir í 57. gr. stjórnarskrárinnar,
að hin evangeliska lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja
á Islandi, og skal ríkisvaldið að þvi leyti styðja liana og
vernda. Nú er reynslan húin að sýna það í mörg ár, að
kirkjumálin og kenslumálin heyra ekki altaf undir sama
ráðherra, og getur því sá maður valist í sess kenslumála-
ráðherra, sem væri andvígur allri kristindómsboðun og
vildi kirkjuna feiga. En undir kenslumálaráðherra og
yfirstjórn hans heyra skólar landsins, alt frá barnaskól-
um og upp í Háskólann. Það eru þvi engin smáræðis
tök, sem þessi ráðherra liefir á skólamálum landsins.