Kirkjuritið - 01.02.1940, Qupperneq 38

Kirkjuritið - 01.02.1940, Qupperneq 38
76 Pétur Oddsson: Febrúar. unum kynt kirkjulegt líknar- og menningarstarf nú á tímum. En svo má segja, ef litið er það langt, að allir stúdentar séu örlítið brot úr guðfræðingum, sem þekkja þróunar- sögu Biblíunnar sem og kristindómsins í stærstu dráttum, vita deili á belztu hugsuðum kristninnar, þeklcja grund- vallandi liugtök og meginreglur í kristilegri trú- og sið- fræði, auk þess sem þeir eru allir vel kunnugir þvi helzta, sem kristin kirkja vinnur nú á dögum að trúboðs-, menn- ingar- og líknarstarfi. Ýmsir uppeldisfrömuðir bafa tekið svo til orða um sumar styrjaldir, er Þjóðverjar háðu á síðastliðinni öld, að þýzku skólarnir liafi gefið þeim sigur í þeim. Fyrstu vikurnar eftir innrás Rússa í Finnland bafa sýnl það á opinskáan liátt, live líkamleg færni og innri and- legur þróttur getur mátt sín gegn ofurefli hins rauða stáls og vítisvopna. Og bafi Finnar sýnt sig eiga meira af ódauðlegu þori og festu en aðrar þjóðir, þá er eigi fjarri að minnast þess, hvernig skólar þeirra, öðrum fremur, blása lífsanda í hjörtu barna sinna. Hér er ekki vettvangur til að benda á alt það i uppeldi Finnans, sem hefir gefið honum breysti og þor hins ó- dauðlega sigurvegara. Á margt af þessu hefir þegar verið bent á almennum vettvangi, t. d. íþróttaiðkanir Finna. Enda er það óþarfi að fara þar út í samanbux-ð. En hér skal aðeins bent á, að það eru dálítið önnur uppistöðuöfi í þeirri lireysti og þeim kjarki, sem dugir gegn kuldabylj- um og kafaldshi'íðum, eða þeim kjarki, sem bezt dugir í eldregni og skothríðum, þar senx limlesting eða dauði býr í hverri einustu hríðarögn. Það er ómetanlegur kraftur, þegar barist er gegn, að þvi er virðist, ósigrandi afli kúgunar og villimensku, að eiga trú lifandi í hjarta sér á endanlegan sigur liins góða, á almáttugan, kærleiksríkan föður. Ekkert verkar

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.