Kirkjuritið - 01.12.1943, Page 8

Kirkjuritið - 01.12.1943, Page 8
310 Bjarni Jónsson: Nóv.-Des. lians, hvort sem liún er send til hinna ríku eða fátæku. Gagnvart Guði eru allir fátækir og þarfnast allir misk- unnar, Kirkjan er send til þeirra, og við það eru tengdar hinar fegurstu minningar, er kirkjan hefir hlýtt þessu orði: „Sá, sem iðkar miskunnsemi, gjöri það með gleði“. Hún hefir lært þetta af honum, sem fæddist á hinni lieilögu nótt. Guð leitar ávallt að þeim, sem þarfnast hjálparinnar. Hve mörgum verður hann þá að leita að? Hann leit yfir heiminn. Sá hann nokkurn, sem þurfti ekki að lijálpa? Nei. Það varð að hjálpa þeim öllum. Þesvegna sendi liann þá hjálp, sem nægir öllum. En hann valdi hina fá- lækustu sem fulltrúa allra hinna fátæku, til þess að enginn gæti sagt: Þetta er handa öllum nema mér. Ef allt færi eftir vilja Guðs, þá væri gott hér að vera. Þá væri enginn hafður út undan. Þá væri fyrir því séð, að hinum minnsta væri ekki gleymt. Þannig fór Guð að. Þannig fer liann alltaf að. Könnumst við það, að vér höfum ekkert til þess að mæla fram með oss fvrir aug- liti Guðs. Þá skilsl oss, hve það er inndælt um að hugsa, að fulltrúar vorir skuli vera fátækir hirðar á erfiðri næturvöku. Hugsum um þetta nú á jólunum, því að nú er mjög dimmt á næturvökunni. En einmitt i baráttu og myrkri næturvökunnar ljómar hirta Drottins. Nú er kveikt á öllum ljósum. .Tólaguðsþjónustan hefst, og mönnunum er fluttur boðskapur frá himninum. Menn skyldu ætla, að menn ásamt hirðunum segðu: ..Sjáum þennan atburð, sem orðinn er og Drottinn hefir kunngjört oss“. Nei, fjöldamargir tala á allt annan veg. Þeir kannast ekki við, að þeim hafi verið kunngjört þelta af Diotni. Hvernig svara þeir tilkynningunni um hina

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.