Kirkjuritið - 01.12.1943, Síða 27

Kirkjuritið - 01.12.1943, Síða 27
Kirkjuritið. Minningarnar vakna. Ég lieimsótti nýlega kennslukonu eina, sem nú liggur rúmfösl. Við vorum lítið kunnug að vísu, en þó ekki með öllu ókunnug. Höfðum verið saman á kennaranám- skeiði vorið 1908. Það niun liafa verið fyrsta kennaranám- skeiðið, er séra Magnús heitinn Helgason sá um. Síðan þá liöfðum við, ég og þessi stéttarsystir mín, ekki liitzt fyrr en nú, svo að ég muni. Eðlilega heindist tal okkar að miklu leyti að samverutímanum 1908 og fólkinu, sem við vorum með, hæði nemendum, kennurum og' skóla- stjóranum. Við áttum hæði margar minningar um þetta vornám, enda vorum við með ágætu fólki, hæði nemend- um og kennurum. Hæsl bar þó skólastjórann í hugum okkar heggja. „Enginn var séra Magnúsi líkur“. Hann mun liafa kennt uppeldis- og kristinfræði og sjálfsagt háðar greinirnar með ágætum. Þó bar mestan ljóma af kennslu lians i kristnum fræðum í endurminniiigum okkar. Við minntumst hæði stunda, er „hjörtun brunnu sem á jólum“. Sérstaklega man ég eftir einni kennslu- slund, síðla á námsskeiðinu, sem hafði geysimikla þýð- ingu fyrir trúarlíf mitt og máske úrslitaþýðingu. Sömu söguna ínunu fleiri geta sag't, ef þeir vildu. í þessari minnisstæðu kennslustund hej'rði ég getið í fyrsta skipt- ið um Englendinginn Jolm Henry Newman og sálm hans: „Lead, kindly light“ (Lýs, milda ljós). Séra Magnús rakli efni eins versins í óbundnu máli og minntist baráttu höfundarins á þann hátt, að mér varð það hugstætt. Ekki veit ég, hvort séra Magnús vissi nokkuð um þýðingu Matthíasar, en hitt er víst, að liana sá ég ekki fyrr en 4 árum síðar. Eftir kennslustundir dagsins fór ég ein- förum út fyrir bæinn. Ég liefi ástæðu til að hahla, að

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.