Kirkjuritið - 01.12.1943, Side 52

Kirkjuritið - 01.12.1943, Side 52
354 Sigurður Pálsson: Nóv.-Des. nokkur illæri, sem þó voru ekki verri en oft höfðu áður yfir þjóðina dunið, lil þess að biskupsstóllinn var flutt- ur frá Skálholti að Laugarnesi við Reykjavík. — Þá stóð enn í Skálholti hin síðasla veglega kirkja, sem á landi hér liefir verið. Hún var rifin og seld á uppboði í árefti fyrir búalýð nágrannasveitanna, og þar með var hið 743 ára helgisetur yfirgefið i rústum og sambandið við sögu þess og menningu rofið. Biskupinn fluttist á kotbýlið Laugarnes. Þar var byggð ný „stofa“ yfir hann, sem svo var lek, að eftir nokkurra ára bil hrökklaðist biskup það- an til Reykjavíkur, og síðan hefir enginn biskupsstóll ver- ið á Islandi og biskupinn verið embættismaður einn og enginn höfðingi. — Um undanfarin 140 ára skeið liafa sár Skálholtsstaðar sízt gróið, og hver sem nokkuð þeklcir til þess veglega sætis, sem Skálholtsstaður skipar í sögu þjóðarinnar, fær ekki orðum að því komið, liversu ber hans blygðan er. Allir, sem í Skálholt koma og vita hvar þeir standa, finna lil þess, að saga staðarins verður ekki frá honum skilin, liinsvegar er þeim erfitt að samrýma þá helgitil- finningu, sem þeir ósjálfrátt hafa í sambandi við staðinn, og núverandi útlit hans og lilutverk, og svo er loks komið, að liver íslendingur Iilýtur að blygðast sín fyrir að láta erlenda menn sjá þennan helga stað, og er óumflýjanlegl að gera það, sem frekast er unnt, til þess að afstýra slík- um heimsóknum. — Þó að mörgu sé áfátt í menningu vorri, er hún naumast í nokkurri grein svo fyrirverðanleg sem í meðferð vorri á þessum allra helgasta stað þjóðar- innar. Úr þessu verður að bæta og sýna þessum tigna stað livern þann sóma, sem sögu hans hæfir. Hvað á að gera við Skálholt? Um það hefir lítið eitt verið rælt og þó lauslega varpað fram, að reisa mætti þar búnaðarskóla, auk þess sem frum- varp hefir komið fram á Alþingi um að flytja þangað hinn alm. menntaskóla í Reykjavík. Um siðara atriðið skal hér ekki rætt, þar sem það getur naumast til mála komið. Um

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.