Kirkjuritið - 01.12.1943, Síða 61
Kirkjuritið. Brekkukirkja í Mjóaf. fimmtug.
363
af H. V. Holm, miklum iistamanni, í Kanpmannahöfn; hún er
þvi 71 árs. Þeir, sem aðallega beittu sér fyrir byggingu kirkjunn-
ar, voru séra Þorsteinn Halldórsson, og lireppstjóri Vilhjálmur
Hjálmarsson á Brekku, sem báðir unnu að þessum málum með
lestu og fyrirliyggju, en margir fleiri sýndu í orði og verki, að
bygging kirkjunnar var þeim áhugamál hið mesta, og studdu það
á allan hátt. Séra Þorsteinn Halldórsson var fyrsti prestur l>ess-
arar kirkju. Hans fagra söngrödd hljómaði hér í kirkjunni i 22
ár, og munu margir eiga siðan ljúfar endurminningar um ó-
gleymanlegar stundir í kirkjunni frá þeim tíma. Áður var hann
búinn að vera prestur við Fjarðarkirkju í 10 ár, svo að prestur
Mjófirðinga var hann í 32 ár, og er það langur tími. Það hafa
5 prestar starfað við kirkjuna, og verður þeirra minnzt hér i
dag af öðrum.
Fyrstu sóknarnefnd Brekkusóknar skipuðu: Vilhjálmur Hjálm-
arsson, hreppstjóri á Brekku, Benedikt Sveinsson póstafgreiðslu-
maður, Borgareyri, og Konráð Hjálmarsson kaupmaður, og voru
þeir áhugamenn að hverju, sem þeir gengu, enda unnu þeir mik-
ið og gott starf í þágu kirkjumálanna. Villijálmur var formaður
nefndarinnar og hafði liann umsjón með byggingu kirkjunnar.
Hann var í sóknarnefnd í 25 ár, eða lengur en nokkur annar og
formaður nefndarinnar og fjárhaldsmaður kirkjunnar allan þann
líma og einlægur stuðningsmaður hennar. Hann var síungur til
starfa, þó að gamall yrði að árum, og' vann ötullega að þessum
málum, sem voru hon'um alvörumál. Margir fleiri liafa lengi að
þessum málum starfað, t. d. Gunnar Jónsson, Holti, Sigurður
Eiriksson, Höfðabrekku og Eiríkur G. ísfeld, Hesteyri, sem
sýndu, að þeir vildu lilynna að kirkjunni og liennar starfi, og
aðstoða presta kirkjunnar i starfi sínu. Jón Árnason frá Hofi var
sá, sem fyrstur lét orgeltónana bergmála um kirkjuna. Spilaði
hann við vígslu hennar og lánaði orgel sitt í hana. Hann hefir
spilað hér lengi í kirkjunni, og sýnt í því starfi rnikinn áliuga,
°g var þessi kirkja ein fyrsta kirkjan á Austurlandi, sem fékk
°rgel, og átti hún það mikið að þakka áhuga Jóns Árnasonar,
hve fljólt hún eignaðist hljóðfæri. Jón var fyrsti söngstjóri kirkj-
unnar, og á hann þakkir skilið fyrir sitt góða starf i þágu kirkj-
söngsins, Sigdór V. Brekkan tók við af Jóni, og stjórnaði söng
hér í kirkjunni, þangað til hann flutti úr sveitinni, og leysi það
starf mjög vel af hendi, eins og öUum er kunnugt, sem til þekkja,
°g er hann alltaf tilbúinn að ljá okkur örfandi hönd, til styrktar
okkar kirkjumálum, og hefir það verið okkur ómetanlegur stuðn-
ingur í starfinu.
Söngstjóranna verður nánar getið í erindi á eftir. Það hafa