Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1946, Side 37

Kirkjuritið - 01.01.1946, Side 37
Kirkjuritið. 31 í Drottins nafni áfram enn og óttalausir verum, með nýju ári nýir menn í nálægð Guðs vér erum við yzta haf, við heljarþröm er Herrans miskunn jöfn og söm! Svo gekkst þú einn á Guðs þíns fund, en græðisöldur sungu þinn dánaróð um drang og sund með dauðagrimmri tungu. Þá hcfst þér önnur hátíð ný í himni Drottins bak við ský. Ef aldrei þrýtur afl né hug á ófæruna að sækja, oft hrapa þeir um hengiflug, sem Herrans köllun rækja, og liggja þar með lamin bein og lemstrað hold við fjörustein. En hann, sem öll vor telur tár við tregans djúpið svarta, mun græða öll þau svöðusár við sinnar náðar hjarta og leggja sína líknarhönd á lamið hold og þjáða önd. Þó blási kalt um lönd og lýð, þín líkn er ávallt nærri, sem huggar oss á hverri tíð með huggun ennþá stærri: Hún líður brátt hin langa nótt, þá ljómar önnur dagsbrún skjótt. Skólabróðir.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.