Kirkjuritið - 01.01.1946, Page 80
II
Biblían í myndum
Franski snillingurinn Gústave Doré varð heims-
frægur fyrir listayerk sin og skreytingar á bókum
og lielgum dómum um miðja síðustu öld. —Fyr-
irmyndir og hugmyndir að þessum listaverkum
sótli hann i Gamla og Nýja testamentið, enda hef-
ir Bihlían orðið mörgum listamanninum kært
verkefni frá því fyrsta.
Þessi útgáfa af mvndum Doré, sem nú birtist
íslenzkum lesendum, er eftirmynd af dönsku út-
gáfunni, sem út kom 1931 og seldist upp á skömm-
um tíma.
Séra Bjarni Jónsson dómprófastur hefir séð um
útgáfuna og valið texta með hverri mynd, en
þær eru rúmlega 200 að tölu.
Þar sem verkið varð síðbúnara en ráðgert var,
kom ekki nema nokkur hluti upplagsins í bóka-
búðir fyrir jólin, enda .varð hún ófáanleg síðustu
dagana.
Nú er Biblían i myndum aftur fáanleg í bóka-
húðum um land allt, og ættu þeir, sem ætla sér
að eignast bókina, að tryggja sér eintak áður en
það er um seinan.
Bihlían í myndum er tilvalin tækifærisgjöf
handa unglingum og bezta fermingargjöfin, sem
völ er á.
Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju
j