Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 12

Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 12
Nóv.-Des. Guðsríki á jörðu. i. Það mun þykja djarft að velja grein þessa fyrirsögn, eins og nú horfir í okkar veröld. En ég gjöri það samt í trausti til jólaboðskaparins, því að við hann falla geislar guðsríkis hingað á jörð. Tjaldinu er svift frá andartak, er englasöngurinn hljóm- ar: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnunum, sem hann liefir [velþóknun á. Fvrirheit er gefið um það, að Guðs vilji verði svo á jörðu sem á himni. Það er þetta, sem lætur jólin verða að jólum. Frelsarinn mun breyta jörð víga, hungurs og iiarma í Guðs ríki, láta friðarsól rísa og birta fvrir þeim augum, er liafa verið mvrkvuð tárum. II. Boðskapur kirkjunnar um Guðs ríki hefir oft á liðn- um öldum verið einhliða og rangur. Hún hefir kennt það, að það mundi fyrst koma liingað á jörð í lok ald- anna við endurkomu Krists. Jörðin sé synda og eymda dalur, sem eigi sér enga viðreisnar von fyr en ríkið stigi niður þangað af himni. Hitt hefir ósjaldan gleymzt, sem er aðalatriðið, að mennirnir eiga að gjöra allt, sem í þeirra valdi stendur, í krafti Krists og kristindóms- ins, til þess að hæta siðferði einstaklingslífsins og félagslífsins og þjóðlífsins og viðskiftalífsins með þá hugsjón fyrir augum, að guðsríkið verði að veruleika á jörðu. Silningurinn hefir daprazt á því, að Kristur boðaði ekki aðeins, að guðsrikið væri i nánd, heldur

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.