Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 17

Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 17
Kirkjuritið. Guðsríki á jörðu. 311 Nýlega ltefir Sir Stafford Cripps ritað bækling um þessi mál af brennandi ábuga. Hann leggur áherzlu á að engum megi fallast hendur, þótt hann sé veikur og kraftasmár. Æfinlega sé munur að mannsliði. í því sambandi segir hann frá för sinni til Kína um Birma- hrautina. Hún er eitt af mestu mannvirkjum veraldar- inar og mun að ýmsu valda aldahvörfum í menningu og sögu Mið-Asíu og gjörbreyta lifnaðarháttunum. En hverju er það að þakka, að þetta verlc var unnið — þessari dásamlegu hugsjón hrundið í framkvæmd? Margar miljónir karla og kvenna og barna báru að dag eftir dag af frábærri þrautseigju dálitlar körfur með ofaniburði og helltu á sinn stað. Ef allir hefðu liugsað: „Það muar ekkerl um litlu körfuna mina“, og látið staðar numið við það, þá befði þessi volduga braut um ókleifa bamra og hengiflug og gínandi gljúf- ur aldrei orðið til. Hið sama gildir fyrir sitt lejdi um guðsrikisstarfið. VII. Guðsríkisstarfið verður að byggjast á þeirri megin- bugsjón kristindómsins, að allir menn séu bræður og' systur og jafnir fyrir Guði og hann iiafi ætlað þeim hverjum um sig sitt verk; enginn megi án annars vera, og slandi þeir í þakkarskuld Iiver við annan. Ekkert annað getur endurvakið vinnugleðina, sem nú hefir fjarað út hjá fjölda manns, af því að þeir telja starfið aðeins meðal til að afla tekna. Á iiæfileikum manna og dugnaði er auðvitað mikill munur, og þeir, sem fær- astir eru, eiga að hafa stjórn og forustu með höndum. En þeir mega ekki líta smáum augum á hina fyrir því, heldur eins og hræður sína og jafningja fyrir Guði. Sá jöfnuður þarf að ríkja með börnum Guðs, að hvorki auður né stétt skapi neinum forréttindi, heldur að allir eigi kost á að komast til þeirrar menntunar og þroska, sem þeir þarfnast til að njóta sín í lifinu.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.