Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 40

Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 40
331 Nóv.-Des. hins himneska. Hér á þessum stað, var þjónusta þeirra þökkuð og, ástvinum þeirra boðuð sú huggun, sem bezt hefir reynzt. Þess- ir gömlu veggir hafa staðið vörð um gleði og sorg Reykvíkinga í 150 ár. En hér er ekki um það eitt að ræða, þótt mikið sé, að um hálfrar annarrar aldar skeið hefir dómkirkjan verið nátengd einkalífi borgaranna í þessum bæ, hún hefir einnig verið kirkja þjóðarinnar. Innan þessara hundrað og fimmtíu ára gömlu veggja hefir margc gerzt, sem núið er stærstu atburðunum í þjóðlífinu á þessum tíma. Hingað hafa Alþingismenn komið frá því, er Alþing var endurreist fyrir rúmum hundrað árum. Héðan var blessun lýst yfir höfuðáfangana í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Hér var sunginn í fyrsta sinn þjóðsöngurinn, Ó, Guð vors lands, þjóðhá- hátíðarsumarið 1874, hingað sótti Jón Sigurðsson kirkju, og héð- an voru bein hans borin upp í kirkjugarðinn, og hér var endur- reisn lýðveldisins fagnað, sumarið 1944. Þetta gamla hús, sem vér erum að heiðra í dag, geymir svo margar minningar úr hundrað og fimmtíu ára sögu þjóðar vorrar, að hér er vissulega þjóðarhelgidómur. En honum, sem þetta guðshús var vígt, skal einnig þökkin helguð.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.