Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 14

Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 14
12 KIRKJURITIÐ geislastafur, sem endurspeglast einnig úr djúpum hjartn- anna. Sá, sem er stöðugur í kærleikanum, er stöðugur í Guði, og Guð er stöðugur í honum. Leggjum í þeim huga á áfanga nýja ársins. Verjum lífi og öllu, sem við eigum, í þjónustu annarra manna. Til þess hefir Guð gefið okkur það, og svo þjónum við hon- um bezt. Án kærleiks er glatað árum og dögum. En allt, sem frá honum er komið, lifir. Gróður kærleikans visnar ekki. Þig felur hvorki fold né sær. Hver fífill þinn um eilífð grær. „Nú er það eilífðin,“ hvíslaði Nathan Söderblom deyjandi. Sú kemur stund, að við getum sagt hið sama. Já, eilífðin bíður okkar allra eins og úthaf handan við straum tímans. Þegar þar kemur, verður gott að hafa í Guðs nafni sáð fyrir hana — en ekki því, sem upprætt verður. Hvað hreint og gott þú hugsar, elskar, vilt, allt heilagt, fagurt, — því nær aldrei tíðin, það fölnar ei, þótt alda geisi hríðin, og eilífðin það tekur gott og gilt. Nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. Gleðilegt nýár. Ásmundur Guðmundsson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.