Kirkjuritið - 01.12.1952, Blaðsíða 9
LJÓSIÐ, SEM ALDREI SLOKKNAR 215
kristinna manna við lágu jötuna í Betlehem á heilagri
jólanótt.
„Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn
í gegnum bárur, brim og voðasker."
Við staðnæmumst í anda við Betlehemsjötuna á heil-
aSri jólanótt. Hvað komum við til að sjá? Við komum
til að sjá kærleika Guðs og efndir hans á aldagömlu fyr-
U'heiti. Við komum til að sjá hámark fórnarlundar og
bróðurelsku, æðstu himneska opinberun, sem á jörðu hef-
lr birzt, Guðssoninn, sem fæðist úr fortilveru sinni úr
óýrð himnanna til þess að friðþægja fyrir villuráfandi
mannkyn með fæðingu sinni, lífi og dauða. Við komum
_ að sjá Orðið, sem varð hold og bjó með oss, fullur
^aðar og sannleika. Við komum til að sjá staðreynd
Peirra orða, sem postulinn skrifar síðar: „Svo elskaði Guð
heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver
Sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Við
°mum til að sjá í veruleika þann mesta gleðiboðskap,
Sem mannkyninu hefir hlotnazt frá sköpun heims, sjá
staðfestingu þess í verki, að Guð elskar heiminn og hefir
Velþóknun á mönnunum, þrátt fyrir allar syndir okkar og
S1ðferðilegan veikleika.
Þessi atburður, sem sameinar hugi kristinna manna á
eilagri jólanótt, gerðist fyrir hálfri tuttugustu öld síðan.
n minnumst þess, að það ljós, sem kveikt var syndugu
mannkyni í Betlehem hina fyrstu jólanótt, það logar enn.
að ætti því að vera bæn alls hins kristna heims um þessi
lól, og öll jól, að mönnunum gefist náð til að fylgja jóla-
Jósinu eilífa og ganga við vegleiðslu þess. Sú bæn, flutt
1 einlægni og trú, getur ein gefið hinu hrjáða mannkyni
Sleðileg jól, jól innri og ytri friðar og kærleika.
Gleðileg jól!