Kirkjuritið - 01.12.1952, Blaðsíða 32
238
KIRKJURITIÐ
ekki aðeins ráðsmenn, heldur líka ranglátir ráðsmenn.
Eða er það ekki alveg rétt hermt? Við fórum ekki vel
með eignir húsbóndans. Og við verðum, áður langt um
líður, kölluð fram fyrir hann og hann segir: Gerðu reikn-
ingsskap ráðsmennsku þinnar, því að þú átt ekki að hafa
hana lengur. Skyldi nokkur maður vera svo blindur eða
forhertur, að hann finni ekki eitthvað líkt til og rang-
láti ráðsmaðurinn í sögunni, þegar þetta kall kemur frá
Guði sjálfum: Komdu og gerðu reikningsskap!?
Og í þriðja lagi kennir sagan okkur, hvað við eigum
að gera við fjármuni okkar. Ráðsmaðurinn gaf eigur
húsbónda síns til þess að afla sér vina og tryggja sér góða
vist, þegar hann léti af ráðsmennskunni. Þetta var ekki
fallegt eins og á stóð. En Jesús sér á þessa aðra hlið, þá
hlið, sem að okkur snýr. Og hann segir: Notið fjármuni
ykkar einmitt svona. Notið það, sem faðirinn á himnum
hefir fengið ykkur, til þess að afla ykkur þess, sem þið
þurfið, þegar ykkar ráðsmennsku lýkur. Notið ykkar jarð-
nesku fjármuni og annað, sem þið ráðið yfir, til þess að
safna ykkur fjársjóðum í hinum eilífu tjaldbúðum. Eins
og Jesús sagði við ríka unglinginn: Far, sel eignir þínar
og gef fátækum, og þú munt eignast fjársjóð á himnum.
Þannig gat Jesús unnið háleitustu speki og hreinasta
siðalærdóm úr sjálfum sora mannlífsins........
Magnús Jónsson.