Kirkjuritið - 01.12.1952, Blaðsíða 36
Aldarminning:
SÉRA STEFÁN M. JÓNSSON
á Auðkúlu.
1852 — 18. janúar — 1952
„öllu er afmörkuS stund, og sérhver hlutur undir himnin-
um hefir sinn tíma. AS fœSast hefir sinn tíma og aS deyia
hefir sinn tíma. AS gróSursetja hefir sinn tíma og aS rífo
þaS upp, sem gróSursett hefir veriS, hefir sinn 'tíma.“
Stund hinna fornu prestakalla
virðist vera komin. Með ári
hverju fjölgar þeim prestum, er
yfirgefa staðinn og flytja í næsta
kauptún. Mörg prestaköll eru af-
numin með lögum í sveitum og
ný stofnuð við sjó. Það, sem
gróðursett var í árdaga kristn-
innar hér á landi, er nú rifið upp-
Um margar aldir voru hér hvorki
þorp né þéttbýli. En hver sveit,
hvert byggðarlag átti sinn stað,
þar sem sóknarkirkja stóð °S
prestur bjó. Þar var höfuðstaður,
andlegur höfuðstaður sveitarinn-
ar. Þar voru mannfundir oftast haldnir. Presturinn b]°
unga sveina undir skóla, en kona hans og dætur kenndu
ungum stúlkum til munns og handa.
Með hinum fornu prestsetrum og sveitaprestum glata
sveitirnar miklum menningarverðmætum, þótt margt nýtt.
svo sem skólar og félagsheimili, komi í staðinn og el%1
tjái móti að mæla, þegar breyttir þjóðhættir hafa sinn
Stefán M. Jónsson