Kirkjuritið - 01.12.1952, Blaðsíða 76
282
KIRKJURITIÐ
um, en „afskipti af stjómmálum“ heitir allt í starfi prestanna,
sem ekki fellur valdhöfunum í geð. Þeir prestar, sem ekki
vilja beygja sig, eru miskunnarlaust ofsóttir.
Ný lútersk kirkjuskipun í Ungverjalandi.
Samkv. fregnum frá Ungverjalandi hefir ný lútersk kirkju-
skipun verið samþykkt þar í landi, er miðar að því, að ríkis-
valdið fái ótakmörkuð umráð yfir málefnum kirkjunnar. —■
Nokkrir af leiðtogum kirkjunnar sögðu af sér embættum, áður
en kirkjuskipunin var undirrituð. Lúterska kirkjan telur 430
þúsund meðlimi, en allir helztu embættismenn hennar eru nú
útnefndir af stjómarvöldum landsins.
Útvarpsstöð í þjónustu kristindómsins.
í ráði er, að á næstunni verði reist sérstök útvarpsstöð í
Norður-Afríku, til þess að varpa út kristilegri dagskrá til landa
við Miðjarðarhafið og landanna fyrir austan „járntjaldið".
Stöðin verður reist á alþjóðasvæðinu í Tangiers og starfrækt
fyrir fé, sem einstök kirkjufélög og áhugamenn leggja til. Ut-
varp þetta á að heita „Rödd kristindómsins".
Ó. J. Þ.
INNLENDAR FRÉTTIR
Séra Ingi Jónsson
hefir verið skipaður prestur í Norðfjarðarprestakalli fra
1. október.
Séra Þorbergur Kristjánsson
hefir verið skipaður prestur í Bolungarvíkurprestakalli fra
sama tíma.
Séra Árelíus Níelsson
hefir verið skipaður prestur í Langholtsprestakalli frá
nóvember.
Séra Gunnar Árnason
hefir verið skipaður prestur í Bústaðaprestakalli frá sama
tíma.