Kirkjuritið - 01.12.1952, Blaðsíða 59
VEGURINN GÓÐI
265
er Endurvopnunin siðferðilega — vegur innblásins lýð-
ræðis, er mun sameina mannkynið.“
Innblásið hugsjónalíf lýðræðisins er það líf, sem lifa
skal, sá vegur, er þræða á. Brýn þörf er á nýrri stjórn-
vizku, — stjórnvizku, er leiði til breytingar á mönnunum
til batnaðar.
Að sama skapi sem menn breytast og batna, komast
þjóðirnar á hærra stig og lifa því lífi, að ráðið verður
fram úr vandamálunum.
Að sama skapi sem menn hlýða á orð Guðs og lifa eftir
skipunum hans, munu þjóðirnar öðlast skilning á því,
hvemig Guð vill leiða þær.
Þetta er vegurinn góði. Allir geta haldið hann. Og all-
ir verða að halda hann, alþýðan jafnt og stjómmála-
mennimir.
Þá er vér leggjum á hann, verður Guð fullkominn vem-
leiki. Óttinn hjaðnar niður, og lífið brosir við. Það er eng-
in þörf á því að víkja til hliðar. Vegurinn góði liggur
beint fram.
Bf þér œtliö að beygja til hægri — og ef þér ætlið að
beygja til vinstri, þá munuð þér heyra að baki yðar þetta
orð: „Þetta er vegurinn, haldið hann.“
Þjóðir munu halda veginn vegna Drottins, Guðs þíns.
Og mikill mun verða friður bama þinna.
Frank Buchman.