Kirkjuritið - 01.12.1952, Blaðsíða 60
jfjfjfjfjfjfjfjf^fjfjfjfjfjfjfjfjf^fjfjf+jfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjf**********
'liilóuLrtuir fori^ótuimaciuu*.
★
★
★
★
★
★
ír
★
★
★
★
★
★
★
★
Eins og kunnugt er, nýtur séra Valdimar J. Eylands
hins bezta trausts með löndum sínum vestan hafs, og hafa
þeir falið honum mörg og mikil trúnaðarstörf. Hann hefir
um langa hríð þjónað stærsta söfnuði íslendinga í Vestur-
heimi, Fyrsta lúterska söfnuðinum í Winnipeg. Og nú á
þessu ári hefir hann bæði verið kjörinn forseti Lúterska
kirkjufélagsins og Þjóðræknisfélagsins. Ennfremur hefir
hann nýlega tekið við ritstjórn Sameiningarinnar. Ber
þetta allt glöggt vitni um það, hvers álits hann nýtur,
enda er hann atorkumaður mikill, áhugasamur, vel máli
farinn, ágætlega ritfær og yfirleitt hið bezta til foringja
fallinn.
Hér á íslandi eignaðist séra Valdimar einnig marga
vini, þegar hann var prestur í Útskálaprestakalli 1947—8,
og meta þeir hann mjög mikils vegna mannkosta hans og
hæfileika. Varð þeim söknuður að því, er hann hvarf burt
héðan með konu sinni og börnum.
Kirkjuritið vill geyma mynd þeirra allra og sendir þeim
beztu kveðjur og jólaóskir. Farsæld og blessun fylgi séra
Valdimar í margþættu starfi, vandasömu og veglegu.
Hann er einn hinna hógværu, sem munu landið erfa.
Á. G.