Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 28
234
KIRKJURITIÐ
Dr. Magnús Jónsson fyrir al'tari í Mœlifellskirkju.
ast að bregðast áhuga séra Tryggva. En hann andaðist
1940.
Þegar svo var farið að hugsa til endurbóta á kirkjuhús-
inu í tíð núverandi prests, séra Bjartmars Kristjánssonar,
er kom að Mælifelli 1947, vaknaði þetta altaristöflumál
af sínum Þyrnirósu-svefni. Séra Bjartmar sá myndina
eitt sinn hjá mér og vildi óvægur fá hana. Fór svo, að
hún var send að Mælifelli. Og þá sá ég hana upp setta til
bráðabirgða á kórgaflinum.
Kom þá í ljós, að kórboginn (í kórdyrum) er mikið lægrl
en kórinn sjálfur og þótti mér þá Kristsmyndin of há og
einangruð, og margt fleira sá ég nú að breytast þurfö
vegna ljóss og annarra aðstæðna. Hraus mér þó hugur við
að gera myndina upp alla saman, en breytti henni allmik'
ið og vann að henni langar stundir, þar sem hún stóð 1
kirkjunni, fyllti m. a. upp mjög mikið bakgrunn, til ÞeSS