Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 40
246
KIRKJURITIÐ
til, að Magnús hafi útvegað bróður sínum skrifarastarfið,
e. t. v. fyrir atbeina Kriegers, sem var mjög vinveittur
Magnúsi og studdi hann síðar til náms í Kaupmannahöfn.
Á Lambastöðum hefir fyrst borið saman fundum þeirra
Jóns og Hólmfríðar Bjarnadóttur, uppeldisdóttur prest-
hjónanna. H. 5. mai 1839 eru þau gefin saman í dómkirkj-
unni. Svaramenn voru þeir Jón landlæknir Þorsteinsson
og faktor Fischer. Þeim hjónum varð fjögurra barna auð-
ið. Elzt var Anna Kristín, f. 27. nóv. 1840; þá Þónmn, f.
6. júní 1842; Friðrika Sigríður, f. 14. ágúst 1847, og yngst-
ur Stefán Magnús, f. 18. jan. 1852. Jón Eiríksson andað-
ist árið 1861, aðeins 49 ára gamall. Efnahagur heimilisins
var þröngur, en maddama Hólmfríður þótti bæði tápmikil
og ráðsvinn. Anna Kristín fór í vist og vann fyrir sér.
Síðar giftist hún Bimi bókbindara Friðrikssyni, en hann
lézt eftir stutta sambúð. Síðar miklu fór hún norður að
Auðkúlu til Stefáns, bróður síns, og þar andaðist hún.
Næstelzta systirin, Þórunn, fór í fóstur austur að Ket-
ilsstöðum á Völlum til Þorsteins sýslumanns Jónssonar og
Ingibjargar Gunnlaugsdóttur Oddsen. Þórunn giftist síðar
frænda sínum, Eiríki Halldórssyni frá Úlfsstöðum. Hann
var um þær mundir sýsluskrifari hjá Þorsteini sýslumanni.
Þau bjuggu síðar í Blöndudalshólum í Húnavatnssýslu.
Yngstu bömin, Sigríður og Stefán, voru kyrr hjá móð-
ur sinni. Sigríður andaðist á tvítugsaldri og varð ættingj-
um sínum mjög harmdauði. Stefán reyndi snemma að
létta undir með móður sinni. Hann var þingsveinn þau
sumur, er alþingi kom saman, og öðrum þræði fékk hann
vinnu við verzlunarstörf. Hugur hans stóð mjög til skóla-
náms, en efnaskortur hamlaði. Þá var það, að séra Þor-
kell Bjarnason á Reynivöllum bauðst til að kenna honum
undir skóla án endurgjalds. Var Stefán svo tekinn í Lat-
ínuskólann haustið 1867 og lauk skólanámi þaðan 1873.
Margir skólabræðra Stefáns urðu síðar þjóðkunnir
menn og honum jafnan minnistæðir. Eldri honum í skóla
vom þeir Kristján Fjallaskáld, Kristján Eldjám Þórarins-