Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 65

Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 65
ÓKUNNA GUÐSPJALLIÐ 271 spjall, þá má draga af því þá ályktun, að höfundur Ókunna guðspjallsins hafi þekkt þau, en segi þó sjálfstætt frá. Framsetningin minnir allmjög á Jóhannesarguðspjall og virðist að vissu leyti brúa bilið milli þess og Samstofna guðspjallanna. Gæti það því vel verið eldra en Jóhann- osarguðspjall, sem samið mun vera í lok 1. aldar, enda er elzta handritsslitur Nýja testamentisins af Jóhannes- arguðspjalli og skrifað um 120, að því er fræðimenn telja. Skyldleikinn með þessum tveimur guðspjöllum stafar að líkindum af því, að þau eru runnin bæði af sömu erfða- kenningu, þeirri sem varðveittist í Efesus. Ókunna guðspjallið er sennilega ritað einhvem tíma á árunum 85—95 og handritsblöðin úr því, sem varðveitzt hafa, eru að dómi sérfræðinga frá miðri 2. öld. Engar hliðstæður eru til að IV. kafla þess. En þar hef- ir verið skýrt frá kraftaverki, sem Jesús hefir unnið með Því að stökkva Jórdanvatni á andstæðinga sína. Vonandi á eftir að finnast meira af guðspjalli þessu. Á.G. AÐ KVELDI. Upp við stofninn önd mín grær, þar er andans athvarf fundið. Allt er lögum Drottins bundið, föstum reglum fjær og nær. Sannleiksandinn segir mér: Óðum Ijósin dagsins dofna. í Drottins vernd er gott að sofna við Ijósið, sem að eilíft er. Heimþrá grípur huga minn. Halla eg mér að hjarta þínu. hér á lífsins kveldi mínu. í tjaldbúð þína tak mig inn. Ingibjörg GuSmundsdóttir.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.