Kirkjuritið - 01.12.1953, Page 9
JÓL — MINNINGAR
231
gagntaki mannssálirnar. Óskum, að björtu minningarnar
frá jólum bernsku og æsku verði friðarenglar, sem tengi
hinar stríðandi þjóðir í eina órofa heild bræðralagsins.
Og nú á þessari stundu er himinninn kominn ofan á
jörðina og Jesús, jólabarnið, stendur við dyr þínar, áheyr-
andi minn, hver sem þú ert og hvar sem þú ert, og segir:
,,Friður sé með yður.“ Hann þráir að bera frið sinn og
boðskap fyrirgefningarinnar, boðskap jólanna: friður á
jörðu, inn í hvern einasta bæ og hvert einasta hjarta.
Ekkert gæti valdið slíkri blessun í mannheimum sem
t>að, að sú ósk mætti rætast. Ekkert gæti gefið meira
Ijós. Ekkert gæti fremur vafið ilmi vorsins og gleðinnar,
jafnt um kot og konungshöll: Hver, sem getur tekið á móti
slíkri jólagjöf í brosljóma fegurstu minninganna, hann eða
hún er barn hamingjunnar, bróðir eða systir jólabarnsins.
Árélíus Níelsson.
Gleðileg jól.
Jólanna dýrð nú andar að
með orð, sem brenna í hjarta.
Heilaga röddin, hún er það.
Hátíðin runnin bjarta.
Frelsari heimsins fæddur er,
fjárhúsið opið stendur,
með gleðisöng inn göngum vér.
Guðsson er til vor sendur.
Ingibjörg GuÖmundsson.