Kirkjuritið - 01.12.1953, Page 25
SIGURGEIR SIGURÐSSON BISKUP
247
1 rauninni hefði hann átt að fá að lifa og starfa í heimi,
þar sem mennirnir voru betri, bræðralagið heilla og bjart-
ara yfir öllum leiðum. En eru það ekki einmitt slíkir
menn, sem með bjartsýni sinni og trúartrausti lyfta sam-
tíð sinni og hefja hana í sólarátt?
Hann var starfsins maður. Hann skildi mikilvægi þess,
að vinna meðan dagur er og gjöra vilja síns himneska
Lagt af stað frá biskupssetrinu, Gimli.
föður. Hann tók vökuna fram yfir svefninn, starfið fram
yfir hvíldina. Hann kunni ekki að hlífa sér. Og á vett-
vangi starfsins hneig hann, þegar kallið var komið.
Hann var einnig orðsins maður. Ekki fyrst og fremst
hins hnitmiðaða orðs og margfágaða máls. Hann var mað-
ur hins lifandi orð, — orða, sem hin innri glóð gerði
máttug og sterk.
Já, yfir öllum þeim minningum, sem vér vinir hans og
samstarfsmenn geymum um hann, er heiðríkja og birta.