Kirkjuritið - 01.12.1953, Qupperneq 70
292
KIRKJURITIÐ
1 sambandi við þingið fluttu prestar og guðfræðingar
úr hópi gestanna guðsþjónustur í flestum kirkjum bæjar-
ins.. Sérfundir ýmissa bindindissamtaka voru haldnir í
sambandi við þingið, svo sem hinna kristnu bindindissam-
taka á Norðurlöndum, en þau eru víðast utan Islands
öflug og mannmörg.
1 sambandi við þingið voru farnar skemmtiferðir til
Þingvalla, Gullfoss og Geysis, og setið að borðum í boði
ríkisstjórnar og Reykjavíkurbæjar. Fulltrúum frá öllum
löndunum var og boðið að heimsækja forsetahjónin að
Bessastöðum, en þau höfðu verið viðstödd setningu þings-
ins. Þá komu þingfulltrúar einnig að Jaðri í boði góð-
templarareglunnar.
Flesta þingdagana var veður hið ákjósanlegasta, og
rómuðu gestirnir allir mjög landið og viðtökurnar. Eftir
blaðafregnum að dæma, sem hingað hafa borizt, vom þeir
mjög ánægðir með komuna hingað, og er þess að vænta,
að þetta þing hafi stutt að raunverulegri samkennd meðal
Norðurlandaþjóðanna og aukinni kynningu á landi voru
og þjóð, jafnframt því sem það má teljast áfangi á leið-
inni til aukinnar samvinnu um það mikilvæga málefni,
sem það var helgað.
Björn Magnússon.
★
Vestur-íslenzk prestshjón
frá Seattle á Kyrrahafsströnd, frú Svava og séra Eric Sigmar,
dveljast í vetur hér á landi. Þau komu síðastliðið haust og
ferðuðust þá um Norðurland og heimsóttu ættfólk sitt. Séra
Eric stundar nám við Háskólann bæði í guðfræðisdeild og
heimspekisdeild. Hann er sonur séra Haralds Sigmars, sem
um skeið var forseti Evangelisk-lúterska kirkjufélagsins með
Vestur-íslendingum.