Kirkjuritið - 01.02.1956, Side 14

Kirkjuritið - 01.02.1956, Side 14
60 KIRKJURITIÐ maður um hvers konar menningarmál og prýðilega ritfær. Það sýndi hann bezt með bók sinni: Hetjur lwersdagslífsins, sem út kom í fyrra. * * * í jólahefti Heimila og skóla skrifar ritstjórinn grein, sem hann nefnir: Vikudagarnir og skólastarfið. Þar segir svo: „Hvíldar- dagurinn er annars að verða hálfgert vandamál í þéttbýlinu. í stað hvíldar, kyrrðar og næðis, sem sunnudagur heimilanna á að vera mótaður af, er þar æði oft allt á tjá og tundri. Fundir, skemmtanir, heimboð, bíóferðir — einna sjaldnast kannske kirkju- ferðir.....Kirkjan hefir upp á margt að bjóða, og þá ekki sízt innri frið, og jafnvægi. Það er hvíld og endurnæring þreyttri sál að fara í kirkju, hvað sem ræðum prestanna líður. Kirkjan býður alltaf upp á andlega hvíld og frið. Það lægir öldurnar hið innra að fara í kirkju, við gerum það því of sjaldan á þessum órólegu tímum og börnin okkar einnig. Það er gott, að þau sæki sunnudagaskóla og barnaguðsþjónustur, en þau eiga einnig að venjast því að fara í kirkju með foreldrum sínum. Þau eiga að fara í kirkju með foreldrum sínum. Þau eiga að læra að njóta friðar og hvíldar og lotningar guðsþjónustunnar. * >;< * Æskulýðssíður Tímans og Morgunblaðsins minntust jólanna að þessu sinni. Tíminn birti grein eftir ungan mann, Stefán M. Gunnarsson. Hann nefnir jólahugleiðingu sína: „Sérðu jólin?” og lýkur henni á þessa leið: „Ég vil, að þetta sé minn jólaboðskapur: Hlúðu að þinni barnatrú, eins og rós í garðinum þínum, sem þú vilt láta dafna. Týndu ekki þinni æskuhugsjón í solli og hávaða lífsins, en ef þú missir sjónar á henni um stund, þá minnstu þess, að „hið týnda andlit huldu höfði fer, í hljóðlátustu fylgsnum sálar þinnar," svo að þú getur ætíð fundið hana aftur. Og mark- aðu þína lífsstefnu í samræmi við trúna.“ * % * Æskulýðssíða Morgunblaðsins birti viðtal við hinn unga Skál- holtsprest, sr. Guðmund Ó. Ólason. Spurningunni: „Hvað telur þá mikilvægast í presistarfinu? svarar hinn ungi prestur svo:

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.