Kirkjuritið - 01.04.1956, Síða 33

Kirkjuritið - 01.04.1956, Síða 33
í BRÆÐKASVEIT 175 anlegt þjóð sinni og kirkju. Rætt var þetta kvöld um útvarp og kirkju. Aðal-dagskrárstjóri út\ arpsins sat þann fund. Umræður urðu fjörugar, og margar gagnlegar ábendingar gefnar um þátt utvarpsins í kristindómsboðun. Oðru sinni var farið í ökuferð um nýbyggð úthverfi Oslóborg- nr. Þarna er verið að mynda nýja söfnuði, og vakti undrun mína °g aðdáun, hvemig það starf allt er skipulagt og byggt upp. Er ekki rúm hér til að lýsa því nánar. En efalaust gætu t. d. úthverfa- prestar Reykjavíkur margt gagnlegt lært af þessu þróttmikla starfi og haft til hliðsjónar í sönm aðstæðum í söfnuðum sínum. Fundarhöldum lauk síðdegis á föstudegi. Kveðjur voru þá fluttar. Erlendir gestir þökkuðu fyrir sig. Framkvæmdarstjóri prestafélagsins, Iiille, kvaddi þátttakendur, og að lokum flutti Smemo biskup stutt ávarp og bæn. Að því loknu flutti hann Flessun. Síðast var sálmur sunginn. Fleiri en ég voru á því máli, að þessi samvera hefði orðið til gagns og uppbyggingar. Þetta voru góðar stundir í bræðrasveit. Eftir eru ljúfar minningar og þakklátur hugur. LÁrus Halldórsson. Orð og verk. Sönn trúrækni er ekki fólgin í þunglyndra einsetumanna þankabrotum, beldur í atorkusemi, er eflir almenningsheillir..Guðrækileg þanka- brot eru auðveldari en nytsamar athafnir. Til hins fyrra þarf ekki nema ' iðkvæmt kvennageð, en til liins síðara karlmannlega djörfung og dugnað. • • • • Guði er ekkert líferni þóknanlegt utan það, sem mönnum er nytsamt. Magm'is Stephensen. * % * Efinn. Ibsen spurði: „Er það mikla raunverulega mikið?“ Danir spyrja efandi ar>nars: „Er það sanna raunverulega satt?“ — Jóhannes Jörgensen.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.