Kirkjuritið - 01.04.1956, Blaðsíða 50
192
KIRKJUBITIÐ
Reykjavík. Smíð þessi er öll af niikilli snilli gjör, svo og útskurðurinn.
Næsta vegleg gjöf og fögur, gefin til minningar um nákomin ættmenni
þeirra hjóna, þau er verið liafa í Sauðárkrókssöfnuði og hvíla í Sauð-
árkrókskirkjugarði.
Kærar þakkirl Jón Þ. Björnsson (form. sóknarnefndar).
Séra Bjöm Stefánsson fj’rrverandi prófastur frá Auðkúlu átti sjötíu
og fimm ára afmæli 13. f. m. Margir heimsóttu hann og sendu honum
kveðjur af þessu tilefni.
Séra Conrad M. Thompson frá Minneapolis, framkvæmdastjóri
Evangeliskra-lúterskra safnaða í Norður-Ameriku dvaldizt hér á landi um
dymbilvikuna og páskana. Flutti hann erindi um samstarf lúterskra safn-
aða í Vesturheimi og á Norðurlöndum og átti fund með ýmsum prestum á
heimili biskups. Héðan fór hann til Noregs og Svíþjóðar og vinnur þar
meðal annars að undirbúningi næsta aðalþings Lúterska heimssambandsins,
sem haldið verður að forfallalausu í Minneapolis 16,—25. ágúst næsta ár.
Séra Conrad M. Thompson er ungur maður, áhugasamur og vel máli farinn.
Æskulýðsguðsþjónustur voru víða haldnar í Eyjafirði og Suður-
Þingeyjarsýslu 18. marz. Þetta er góður siður, sem efalaust hefur mikið gildi.
Séra Jakob Einarsson prófastur frá Hofi í Vopnafirði og frú hans
dveljast nú um sinn vestan hafs með börnum sínurn. Fékk biskup bréf frá
prófasti, skrifað í marzlok í Birkeley í Kaliforníu. Lætur hann mjög vel af
líðan þeirra hjóna og ánægju af ferðinni. Þau eru að líkindum væntanleg
lieim í þessum mánuði.
Ný sálmabókarútgáfa er nú komin frá Isafoldarprentsmiðju, vönd-
uð og í góðu bandi. Kirkjur, safnaðarfélög og skólar geta fengið hana beint
frá forlaginu fyrir aðeins 20 krónur, svo og einstaklingar fyrir milligöngu
biskups, ef sérstaklega stendur á. Þetta ágæta tækifæri skyldi nota sem bezt.
KIRKJURITIÐ
kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00.
Afgreiðsla hjá Elísabetu Helgadóttur, Hringbraut 44. Sími 4Y76.