Kirkjuritið - 01.10.1956, Page 31
f
Séra Asgeir Asgeirsson
prófasiur i Hvammi í Völum
Blöðin hafa flutt fréttina
um lát séra Asgeirs Asgeirs-
sonar og getið all rækilega
helztu æviatriða hans og
starfsferils, bæði í þjónustu
kirkjunnar og margháttaðra
félagsmála, er hann um
margra árabil gegndi með á-
huga og atorku og af mikilli
trúmennsku. í þessum fáu
orðum, verður heldur ekki
mikið rætt um þau atriði,
enda eru mér þau persónu-
lega ekki mikið kunn. Mun
þó fara um þau hér fáum orð-
um.
Séra Asgeir var fæddur 22.
september 1878 á Arngerðareyri á Langadalsströnd. Foreldrar
hans voru þau hjónin Ásgeir hreppstjóri á Arngerðareyri Guð-
mundsson og Margrét Jónsdóttir ættuð úr Breiðdal í Önundar-
firði. Voru ættir foreldraiína beggja merkar og styrkar. Einkum
var föðurætt séra Ásgeirs þjóðkunn. T. d. var Guðmundur Ás-
geirsson afi séra Ásgeirs, móðurbróðir hiris mæta og mikilhæfa
manns Jóns Hjaltalíns skólastjóra á Möðruvöllum. Virðist traust-
leiki og forystuhæfileiki hafa verið sameiginlegur þeim frænd-
um.
Séra Ásgeir lauk stúdentsprófi frá Menntaskóla Reykjavíkur,
vorið 1900 og embættisprófi frá prestaskólanum 1903. Veturinn
eftir stundaði hann kennslustörf í Ármúla vestra og veturinn
1904—1905 gegndi séra Ásgeir skólastjórastarfi við bamaskólann