Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1959, Síða 30

Kirkjuritið - 01.01.1959, Síða 30
24 KIRKJURITIÐ ur afsönnuð en sönnuð á sama hátt og það, að segull dregur að sér stál, eða eitthvað þess háttar. Víst er unnt að færa líkur bæði með og móti henni, en hún er hreint trúaratriði þrátt fyrir það. „Trúið á Guð!“ sagði Jesús Kristur. Og þau ummæli hans, sem komast næst því að benda mönnum á sannanir fyrir tilveru hans, eru þessi ummæli í Jóhannesarguðspjalli: „Ef sá er nokk- ur, sem vill gjöra vilja hans, liann mun komast að raun um, hvort kenningin er frá Guði, eða ég tala af sjálfum mér.“ (Jóh. 7,17). Það er jafn ógerlegt að taka á Guði með höndunum og sinni eigin sál, og menn geta jafn hæglega neitað tilveru hans, ef þeim sýnist, og þeir geta tekið upp á því, ef þeim finnst þeir menn til þess, að telja sér sjálfum allt til gildis, sem Guði hefir áður verið eignað og þakkað. (Hér má aðeins skjóta því inn í, að það er gaman að lesa það í blaði, að þeir, sem eftir því sem bezt er vitað, vilja neita allri eilífð í heimi og á himni, segja, að eldflaug, sem skotið hefir verið á loft, muni ganga í kring um sólina „að eilífu“.) í stuttu máli sagt: Ég sé ekki neitt fararsnið á Guði úr heim- inum, eða meira að segja hérlendis enn, sem betur fer. En ræði það ekki frekar að sinni. Bendi aðeins á önnur ummæli höf.: „Nægar heimildir eru til um dálæti Þorsteins á meistaranum frá Nazaret." Þorsteinn mun víst heldur ekki hafa efað, að Kristur hafi verið uppi! En í alvöru talað: Sé Kristur rúinn öllu, sem byggist á Guðstrú hans og hann með réttu boðar í hennar nafni, — verður þá ekki lítið eftir til að hafa dálæti á? Það alvarlega við þetta mál er það, ef á að fara að gera Þor- stein Erlingsson, hið ágæta og ástsæla skáld, að allt öðrum spámanni en hann var eða vildi vera, — jafnvel að nokkurs konar goði. Því að mannguðir eru verstu guðir á jörðunni. Með þeim sezt skepnan í sæti skaparans, og það getur aldrei góðri lukku stýrt. Dæmi þess eru bæði gömul og ný. Sporin hræða! Jólabók. Síðast núna um hátíðarnar rif jaðist upp fyrir mér hugmynd, sem vakað hefir hjá mér lengi. Það er alsiða erlendis, að kristi- leg félög, yfirstjórnir biskupsdæma og ýmsir fleiri gefa út fal- legar og efnisríkar jólabækur. Ég fékk eina í ár, sem heitir Jul-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.