Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1959, Page 46

Kirkjuritið - 01.01.1959, Page 46
■nnleiMlar iréitir, Séra Erlendur Sigmundsson hefir undanfarna mánuði kynnt sér kirkjulíf og kristilegt starf í Svíþjóð. Lætur hann hið bezta af för sinni. Biskupskjör hefir nú verið ákveðið að fari fram á næstunni og skal því lokið að kveldi 1. apríl n. k. Þrir guðfrœðinemar iuku kandí- datsprófi i lok janúar s. 1.: Jón Svein- björnsson, Reykjavík, Frans Halldórs- son, Kópavogi, og Matthías Frímanns- son, Reykjavík. Séra Stanley Melax á Breiðabóls- stað varð 65 ára 11. des. s. 1. Vel af sér vikið. Þeir séra Birgir Snæbjörnsson á Æsustöðum og Guðmundur Jósafatsson, sóknarnefndarmaður í Austurhlíð, fóru um hátíðarnar á 9 bæi í Bergsstaðasókn, þar sem eru 45 gjaldskyldir safnaðarmeðlimir, og ieituðu samskota til viðgerðar á Bergsstaða- kirkju, sem nú stendur yfir. Gáfust 16 þús. krónur í ferðinni, með framlagi þeirra, er förina fóru. Prestsvígslur. Kirkjuritinu hefir því miður láðst að geta um prests- vígslur, er fóru fram í Dómkirkjunni sunnudaginn 31. ágúst s. 1. Þá voru þeir vígðir guðfræðikandídatarnir Ásgeir Ingibergsson, skipaður prestur í Hvammsprestakalii í Dalaprófastsdæmi, og Sigur- vin Elíasson, settur prestur í Flateyjarprestakalli í Barðastrandar- prófastsdæmi. Frumvarp varðandi þrjónustualdur biskups var borið fram á Al- þingi í haust og það lagt til, að hann hækkaði úr 70 árum í 75, ef % hlutar presta skoruðu á biskup að þjóna áfram eftir sjötugsaldur. Frumvarpið var samþykkt í neðri deild með 16 gegn 9 atkvæðum, en fellt í hinni efri með 9 gegn 7.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.