Kirkjuritið - 01.03.1960, Page 28

Kirkjuritið - 01.03.1960, Page 28
122 KIRKJURITIÐ stöðu í staðinn. Þið hafið í dag birt starfsáætlun ykkar. Hver eru helztu atriði hennar? — Já, starfsáætlunin, sem ekki ætti að kallast því nafni, því að hún er algerlega ... við köllum það sjálf leiðbeiningar, sem aðeins séu ráðleggingar; sem ekki geta bundið samvizku nokkurs manns og ekki heldur leyst neinn frá þeirri skyldu að spyrja sína eigin samvizku. En sem orðið hafa til við sam- vinnu margra manna, er hafa strítt við þetta vandamál. Þær hvetja hvern og einn til að koma ekki nærri því, sem hann getur ekki talið rétt, þ. e. vígslum, guðsþjónustum, kirkjulegu starfi, þar sem þátttaka mundi fela í sér, að hann sætti sig við það, sem nú hefur gerzt. Það má auðvitað spyrja, hvort þetta muni reynast framkvæmanlegt, — hvort um tvenns kon- ar kirkjulíf geti orðið að ræða og ... já, það er undir ýmsu komið. Ef reynt skyldi verða að þröngva einhverjum til að taka þátt í því, sem hann ekki getur tekið þátt í, þá verður það ekki framkvæmanlegt. En eitt er víst, sem sé, að kirkju- þingið hefur lagt áherzlu á, að ekki skuli neyða eða þvinga neinn til þess. Það var með því skilyrði, sem kirkjuþingið féllst á þessi . . .. þessi lög. Og forustumenn kirkjunnar munu gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til að það komi ekki fyrir. Um það erum við ... er ég fullviss, og ég veit, að þannig er það. Og ég vona, að einnig okkur reynist kleyft að vera kyrr í sænsku kirkjunni. Samtímis mun „Kirkjuleg samfylking“ halda starfi sínu áfram með f jölmennum fundum o. s. frv. Þetta með kvenprestana mun ekki verða neitt aðalatriði, það er það ekki, heldur er aðalatriðið hitt, hvort Guðs orð eigi að fá að vera leiðarstjarna okkar, ekki aðeins í þessu smáatriði, heldur í einu og öllu. Ruben Josefsson biskup: „Gerið greinarmun á boðskajmum og tœkinu.“ Á ytra borði kann málið að virðast smávægilegt. Þrír kven- guðfræðingar hafa neytt lögákveðins réttar síns og farið fram á prestvígslu. Nokkrir biskupar hafa tjáð sig reiðubúna að full- nægja embættisskyldu sinni. Hér er um að ræða þess konar samband réttar og skyldu, sem vér erum vanir að skoða sem grundvallaratriði, einnig fyrir líf og starfsreglur kirkjunnar. Á þessu máli er hins vegar önnur hlið. Að þrjár manneskjur

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.