Kirkjuritið - 01.03.1960, Blaðsíða 36
130
KIRKJURITIÐ
ræða, er það samt þess vert, að það sé athugað. Misræmi í
þessu sem öðru er óæskilegt og þyrfti að hverfa.
Vínbindindi.
Eru ekki til lög, sem banna prestum aö neyta áfengis? Þau
munu ekki vera til strangari en svo, að það geti valdið emb-
ættismissi, ef prestur er „hneykslanlega drukkinn" t. d. við
embættisverk. Samkvæmt konungsbréfi frá 15. maí 1638 máttu
prestar ekki brugga brennivín í húsum sínum, né brugga handa
öðrum. Eftir því sem síðari tilskipanir segja, er talsvert slegið
af ákvæðum þessum. Þó er alltaf tekið fram, að prestar megi
ekki hneyksla fólk með víndrykkju. Á prestastefnunni árið 1890
var þetta mál mikið rætt. Svo er það sumarið 1892, að biskup
Islands, herra Hallgrímur Sveinsson, yfir 40 prófastar og prest-
ar og einn prestaskólakennari undirrita svo hljóðandi yfirlýs-
ingu: „Vér undirskrifaðir andlegrar stéttar menn skoðum efl-
ingu og útbreiðslu algjörðs ævibindindis (bæði frá að neyta og
veita) sem kristilegt kærleiksverk, er sérstaklega snerti oss
eptir stöðu vorri, og viljum því með eigin dæmi og yfir höfuð
í orði og verki styðja þetta velferðarmál þjóðar vorrar“ (Kirkju-
blaðið, okt. 1892). Á næstu árum bættust fleiri í hópinn. Vín-
bindindi töldu þessir menn velferðarmál þjóðarinnar þá. Nú
á dögum er það ekki síður velferðarmál, sem prestastéttin ætti
ekki að láta sig minna skipta. Sannarlega vinna margir prestar
að bindindismálum meðal þjóðarinnar, en æskilegt væri, að sá
hópur yrði fjölmennari.
Helgistundir í útvarpinu.
Það er mikið hlustað á helgistundina í morgunútvarpinu. Þó
að ekki fari allir eins með hana, er það mikill fjöldi fólks, sem
á hana hlustar. — Vœri lieppilegra, aö pessari helgistund vceri
sett fastara form? Það er afar hæpið. Auk þess er hún sann-
arlega innan sterkrar umgerðar. Tíminn er ákveðinn, orgel-
undirleikurinn og lesið er úr Biblíunni. Sjálfsvalið hjá þeim,
sem annast þessa helgistund, er því ekki annað en það, hvort
hann kýs að lesa sálmvers eða flytja nokkur orð frá eigin
brjósti. — Væri ekki hægt að fá svipaða helgistund í útvarp-
inu í lok kvöld-dagskrárinnar?