Kirkjuritið - 01.03.1960, Page 33

Kirkjuritið - 01.03.1960, Page 33
Á förnum vegi. Þegar prestur og leikmaður mætast á förnum vegi og taka tal saman, ber að sjálfsögðu margt á góma. Sé leikmaðurinn áhugamaður um kristindómsmál, verða þau mál eðlilega aðal- umræðuefnið. Margt af því, sem þannig fer á milli einstaklinga í samræðum þeirra, er vissulega athyglisvert. Fátt eitt af þvi kemur nokkru sinni íyrir almennings sjónir, en er þó sannar- tega þess vert. Þykir mér rétt að minnast á nokkur slík atriði, sem ég hef átt umræður um, aðallega við leikmenn. Ætla ég ekki að flokka þau sérstaklega, heldur láta þau koma sem eðli- legast fram, svo að þau líkist fremur frjálsu samtali á förnum vegi en hugleiðingum einstaklinga. Þátttaka safnaðar í giiðsþjónustunni. Er hún ekki of lítil? Jú, en samt er hún meiri en margir gera sér ljóst. Áður en guðsþjónustan hefst, hringir einn safn- aðarmanna kirkjuklukkunum og kallar söfnuðinn til guðsþjón- ustunnar. Raunverulega má segja svo, að hringjarinn hafi með höndum starf, sem tilheyrir guðsþjónustunni. Þegar samhringt er og prestur gengur í kirkju, leikur organisti kirkjunnar inn- Sóngulag á orgel kirkjunnar. Þar er um að ræða starf safn- aðarmanns við guðsþjónustuna. Meðan inngöngulagið er leikið, starfar meðhjálparinn, sem er safnaðarmaður, að því að skrýða Prestinn. Síðan les meðhjálparinn bæn úr kórdyrum. Þvi næst hefst almennur safnaðarsöngur, sem venjulega er stjórnað af ^ór kirkjunnar, við undirleik organistans. Þannig tekur söfn- uðurinn virkan þátt í guðsþjónustunni, en presturinn hefur alt- arisþjónustu og flytur prédikun. — En væri ekki æskilegt, að söfnuðurinn tæki meiri þátt í guðsþjónustunni, t. d. með því að fara upphátt með trúarjátninguna eða Faðirvor, eða einhver Ur söfnuðinum læsi valdan kafla úr Biblíunni?

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.