Kirkjuritið - 01.03.1960, Page 34

Kirkjuritið - 01.03.1960, Page 34
128 KIRKJURITIÐ Iiandhægar Bihlíuskýringar. Eru þær nokkrar til? Það eru til skýringar við nokkur rit Biblíunnar, t. d. skýringar við Markúsarguðspjall, Amos, Bréf Páls postula til Korintumanna o. fl. Handhægar sem yfirlits- rit yfir Biblíuna eru bækur þeirra fyrrv. biskups herra Ás- mundar Guðmundssonar og próf. Magnúsar Jónssonar, Inn- gangfræði Gamla testamentisins og Inngangsfræði Nýja testa- mentisins. — En væri ekki hægt að fá stutta lýsingu á efni hvers rits í Biblíunni og fáorðar skýringar á einstökum köfl- um þeirra, annaðhvort í sérstakri bók eða sem framhaldsgrein- ar í Kirkjuritinu? Skyldur skírnarvotta (guðfeðgina). Eru þær nokkrar? Því miður munu of fáir gera sér það ljóst, að nokkurs annars sé krafizt af skírnarvottum (guðfeðginum) en að vera vottar að nafngift barnsins. En skírnin er annað og meira en nafngiftin ein. Þegar barn hefur verið skírt, beinir presturinn þessum orðum til viðstaddra: „Góö systkin, þér er- uö vottar þess, aö þetta barn er skírt til nafns fööurins, sonar- ins og hins heilaga anda og tekiö inn í söfnuð Krists. Nú er þaö heilagt hlutverk yöar, heimilis þess og safnaðar, aö kenna því aö Jialda þaö, sem Drottinn hefur boöiö. Styöjiö þaö með kœrleika og fyrirbœnum til aö lifa í samfélagi viö Krist.“ Hér er í fáum orðum sagt, hvað skírnin er í innsta eðli sínu, en einnig skýrt fram tekið, hverjar skyldur þeirra eru, sem eru vottar að hinni helgu athöfn. En að sjálfsögðu ber þeim einn- ig, ef eftir því er leitað, að vera reiðubúnir að votta, hvenær barnið var skírt. Hefur komið fyrir, að barnsskírn hefur ekki verið færð í prestsþjónustubók og orðið að leita til skírnar- votta því til staðfestu, að barnið hafi verið skírt og hvenær. Safnaðarfundir. Til hvers eru safnaðarfundir haldnir? Eftir það, að söfnuð- ir fengu rétt til þess að taka þátt í stjórn kirkjumálefna sinna fyrir 80 árum, var farið að halda almenna safnaðarfundi. Hlut- verk þessara funda er að fjalla um „kirkjuleg málefni safnað- arins“, eins og það er orðað í lögum. Það er því margt, sem slíkir fundir fjalla um. Þar er m. a. um að ræða helztu fram- kvæmdir gagnvart kirkjuhúsinu, kirkjugarði, kaup á hljóðfæri

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.