Kirkjuritið - 01.12.1960, Page 8
438
KIRKJURITIÐ
aðir á, að nokkur sannleikur sé finnanlegur í veröldinni, og
þeim fer fjölgandi. Jafnvel inn í sjálfa guðfræðina er þessi
Pílatusarandi tekinn að læðast. Til eru guðfræðingar, sem segja:
Vér vitum ekki, og það er ekki unnt að vita, hver er hinn sögu-
legi sannleikur um Jesú Krist, og hvað af kirkjukenningunni er
orðið til í ímyndun frumsafnaðanna. Þess vegna er ekki um
annað að gera en annað hvort hafna ki’istindóminum eða trúa
„kenningunni". Og þar sem algildur sannleikur er aldrei finn-
anlegur, er sjálfsagt að trúa „kenningunni“ og halda henni
fram, ef vér teljum, að hún geri gagn í veröldinni.
Hér er vikið nokkuð langt frá frumreglu Ara fróða: „Hvatki
er missagt er í fræðum þessum, þá er skylt að hafa það held-
ur, sem sannara reynist.“
Sannleikur í stjórnmálum.
Þegar vér hættum að trúa á algildan sannleika og leita að
honum í hvívetna, er stuttur vegur út í lygina. Menn hugsa sem
svo: Ef enginn sannleikur er til, hví erum vér þá að gera oss
nokkra rellu út af honum? Er þá ekki sjálfsagt að telja það
satt, sem oss hentar bezt í hvert skipti, og nota yfirdrepsskap-
inn og blekkingarnar til að villa heimskingjunum sýn eftir
þörfum?
Þar sem þessi heimspeki er í algleymingi úti í veröldinni, eru
jafnvel alfræðiorðabækur og kennslubækur barna umskrifaðar
á nokkurra ára fresti, til að þær geti verið í samræmi við það,
sem valdhafarnir telja sannleik á hverjum tíma. Áróður í blöð-
um og útvarpi fer eftir því, sem henta þykir, öllum sannleik er
snúið við og ofbeldi réttlætt með hreinum ósannindum! Stór-
veldi gleypa smáríki með svipuðum röksemdum og úlfurinn
notaði í dæmisögu Esóps, er hann reif í sig lambið. Til þess að
renna enn betri stoðum undir blekkingarnar er bannað að
hlusta á útvarp frá öðrum þjóðum og truflaðar sendingar það-
an. Þannig fer, hvar sem menn hætta að trúa á sannleikann.
Þessari lífsskoðun fylgir alls staðar ofbeldi, grimmd og harð-
stjórn.
Er þá ástandið mikið betra með vorri eigin þjóð?
Svo lengi sem lýðræðisskipulagi er haldið, gefst mönnum þ°
kostur á að hluta á málaflutning frá fleiri en einni hlið, og eru