Kirkjuritið - 01.12.1960, Side 14
444
KIRKJURITIÐ
En hvernig stendur á þeirri breytingu, sem verður á öllu
þessa nótt? Hvers vegna er Reykjavík fegurri, íbúar borgar-
innar glaðari, já, — ég vil segja betri, þessa nótt en aðrar næt-
ur ársins? Svarið er mjög einfalt. Vér erum að fagna jólagest-
inum, hinum himneska gesti. Það er viðhorfið til hans, sem
veldur allri þessari breytingu. Á þessari undursamlegu nóttu
sjáum vér hugsjón lífsins birtast í sinni fegurstu mynd, og þessi
hugsjón er bundin við bamið í jötunni. Það er meðvitundin um
blessun kærleika og trúar, sem sópar burt hversdagsleikanum
og lætur birta yfir borginni og heimilunum og gerir manns-
hjartað að helgidómi.
Jólanótt í Reykjavík er yndisleg stund. Það er ógleymanlegt
að ganga um miðbæinn í friði hinnar helgu nætur. Það er töfr-
andi að horfa yfir Reykjavík af Öskjuhlíðinni, ljósum prýdda,
á jólanótt, bæinn, sem einu sinni á ári tekur sér hvíld, til þess
að fagna konungi konunganna.
Reykjavík á mikil ítök í hugum allra landsmanna, fjöldi
Reykvíkinga á sínar æskustöðvar úti á landsbyggðinni og um
jólin er hugsað þangað, þar sem menn lærðu fyrst að njóta jól&'
hátíðarinnar og meta gildi hennar.
Og ég vil enda þessar línur með því að senda beztu jólakveðj-
ur héðan úr Reykjavík til allra landsmanna.
Megi blessun og friður hvíla yfir landi voru á heilagri hátíð.
Óskar J. Þorláksson■
Skorið á rúmfjöl 1864.
Undir Jesú verndarvæng
vil ég sofa ókvíöinn.
Mína umkringi mjúka sæng
mœtur engla herskarinn.
Einar Sigurðsson,
bóndi að Bryggjum í Landeyjum.