Kirkjuritið - 01.12.1960, Page 21

Kirkjuritið - 01.12.1960, Page 21
KIRKJURITIÐ 451 skalt þú menn veiða.“ En hvernig endar guðspjallið? „Þeir drógu báta sína á land, yfirgáfu allt og fylgdu honum“. Pétur heyrði og hlýddi. En þeir heyrðu einnig. Þeir heyrðu orðið og varðveittu það, þeir fylgdu Jesú. Þannig er á hverri guðsþjónustustund talað við hinn eina. Þannig er í dag talað við þig og mig, en einnig við oss öll, og til þess ætlazt, að vér verðum samferða á veginum og lof- syngjum Drottni. Eitt orð geymist enn, og því má ekki sleppa. Jesús sagði: ..Vertu óhræddur.“ Nú skila ég þeirri kveðju frá Drottni. Vertu óhræddur, vertu óhrædd. Ég tala þannig við þá, sem andvarp- andi segja: „Ég hef vakað marga nótt og áhyggjur eru í hjarta rnínu." Ég skila kveðjunni til þeirra, sem eru fagnandi, og styrkjast sameiginlega í samfélagi við Drottin. Ég skila þessari kveðju til kirkjunnar, til safnaðanna víðsvegar í landi voru, til heimilanna í bæjum og sveitum. Þessa kveðju flyt ég hér í dag. Ég bið blessunar prestum Dóm- kirkjunnar, söfnuðinum, sóknarnefnd, organista, söngfólki og °llum, sem starfa hér í Guðs húsi. Það er bæn mín, að allt snú- lst til blessunar, og að vér megum sameiginlega með fögnuði vutn ausa úr lindum hjálpræðisins. Guð vaki yfir kirkju vorrí, óiskupi, prestum og öllum, sem berjast fyrir heilögu málefni. Hvilík gjöf og blessun, að vér megum eiga heilagar stundir, er Ver í einum anda biðjum: hvert andartak, hver ómur æ heiðri skaparann, hver hljóðfæranna hljómur um aldir göfgi hann. Vér eigum margar minningar tengdar við þennan stað. Vér sjaum, að þjónarnir koma og fara. En Drottinn er hér og yiH finna oss vakandi. Þegar ég hugsa um nútíð og framtíð ^irkju vorrar, bið ég þess, að vér séum ávallt þeir þjónar, sem bíða eftir húsbóndanum, svo að hann finni þjónana vakandi, er hann kemur. Drottinn kemur, og segir nú: „Legg þú út á djúpið.“ Vér Svörum honum og segjum: „Eftir orði þínu.“ Amen.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.