Kirkjuritið - 01.12.1960, Qupperneq 31
KIRKJURITIÐ
461
ins láta skoðanamun standa því í vegi, að málið verði rætt og
athugað og borið undir héraðsfundi til umræðu og álits um
nokkur höfuðatriði málsins.
Tvær höfuðástæður valda því, að margir óska eftir breyt-
ingum á núgildandi skipun um veitingu prestakalla. Er önnur
þeirra sú ólga og sundurlyndi, sem einatt kemur upp í söfnuð-
um í sambandi við kosningu prests og sú óskemmtilega kosn-
ingahríð, sem stundum er háð með óhjákvæmilegum leiðindum
og kostnaði fyrir umsækjendur. Hin ástæðan er sú afstaða prest
anna, að núgildandi reglur um kosningu þeirra og skipun í emb-
ætti, leggi of miklar hömlur á eðlilega tilfærslu þeirra í emb-
ættum og réttlátan og eðlilegan frama og eigi m. a. sök á því,
að ungir kandídatar fáist síður til þess að fara í hin lakari
brauðin, þar sem þeir eigi einatt þeirra kosta einna völ að sitja
í sama embætti alla ævi eða að ganga hreinlega úr þjónustu
kirkjunnar.
Þessar ástæður báðar hafa við nokkur rök að styðjast og mið-
ar frv. það, sem herra biskupinn lagði fyrir Kirkjuþingið, eink-
um að því að draga úr ófriði þeim, sem almennum kosningum
fyigja, án þess þó að taka valfrelsið með öllu úr höndum safn-
aðanna.
Stjórn Prestafélags íslands, sem fékk frv. til umsagnar, hef-
ur hins vegar lagt áherzlu á það, að ekki yrði látið undir höfuð
leggjast að taka einnig til athugunar, hvort eigi væri unnt að
stíga spor í áttina til þess að auðvelda prestum tilfærslu milli
embætta, og kom formaður félagsins á fund í nefndinni og
skýrði sjónarmið félagsstjórnarinnar.
Nefndin hefur leitazt við að athuga málið frá öllum hliðum,
°g urðu nefndarmenn ásáttir um það að leggja til, að gerðar
verði nokkrar breytingar á frv. því, sem fyrir þingið var lagt,
°g við það skeytt tillögu, í frumvarpsformi, um veitingu á
Prestsembættum í annað eða þriðja hvert sinn, sem embætti
losnar, — ákvæði þess efnis, að þá fari fram veiting án kosn-
ingar í söfnuðinum. Er það því næst tillaga nefndarinnar, að
uiálið verði afgreitt á þessu Kirkjuþingi sem ályktun um að
bera undir álit héraðsfunda og samtök presta, í frumvarps-
formi, þær tillögur, sem fram eru settar í frumvarpinu, eins og
Það kemur frá nefndinni, um breytta tilhögun á veitingu presta-
kalla. Biskup og Kirkjuráð mundu svo vinna úr gögnum þeim,