Kirkjuritið - 01.12.1960, Side 35
KIRKJURITIÐ 465
Málið var að tillögu löggjafarnefndar afgreitt með svo-
felldri rökstuddri dagskrá:
„Frumvarp þetta stendur í nánu sambandi við frumvarp
það um veitingu prestakalla, sem Kirkjuþingið hefur feng-
ið til meðferðar og samþykkt ályktun um, þess efnis, að
málið verði borið undir álit héraðsfunda. Sýnt er, að það
getur skipt miklu máli um verkefni og störf sóknarnefnda,
hver úrslit þess máls verða og hvort samþykkt verða
ákvæði þess efnis, að sóknarnefndir fái í sínar hendur
íhlutun um kosningu og skipun presta. Kemur þá í því
sambandi mjög til álita, hve fjölmennar safnaðarnefndir
skulu vera. Að þessu athuguðu telur Kirkjuþingið ekki að
svo stöddu tímabært að taka mál þetta til meðferðar og
tekur fyrir næsta mál á dagskrá."
III. Frumvarp um kirkjugarða.
Flutt af kirkjumálaráðherra.
Frumvarp þetta lá fyrir Kirkjuþingi 1958 og var afgreitt
þaðan og birt með gerðum þess. Er því ekki ástæða til að
láta það fylgja hér með, þótt það tæki nokkrum breyting-
um í meðförum þingsins nú.
IV. Frumvarp um Vídalínsskóla í Skálholti.
(Þriggja mánaða framhalds- og æfingaskóla fyrir guð-
fræðikandídata). Flutt af biskupi.
Frumvarpið fór til nefndar, en varð ekki útrætt þar.
V. Ályktun um stofnun kristilegs lýðskóla í Skálholti.
Flutt af biskupi.
Kirkjuþing ályktar að skora á kirkjustjórn og fræðslu-
málastjórn að hlutast til um það, að komið verði hið fyrsta
á fót kristilegum lýðskóla í Skálholti.
Ályktunin var að tillögu allsherjarnefndar, er hafði mál-
ið til meðferðar, samþykkt óbreytt með samhljóða at-
kvæðum.
VI. Erindi frá æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar um kirkjulega
miðstöð og æskulýðsstarf í Skálholti var að tillögu alls-
herjarnefndar afgreitt með svohljóðandi tillögu til þings-
ályktunar:
„Kirkjuþing ályktar að skora á kirkjustjórn að hlutast til
30